«

»

Molar um málfar og miðla CXXVI

 

Úr Netmogga (13.08.2009):….að sögn lögreglunnar á Vestfjörðum varð ökumanninum á þau mistök að stíga á bensíngjöfina í stað bremsunnar… Ökumanninum urðu á þau mistök að stíga á bensíngjöfina  í  stað hemlanna,  eða í  stað þess að  stíga á bremsuna eða  bremsurnar.

 Í  fréttum RÚV sjónvarps kl 1900 (13.08.2009)  sagði fréttamaður:  …þetta þýðir það að Icesave  samningurinn er ekki að fara óbreyttur í gegn um þingið..    Hversvegna   þessi  hvimleiða  nútíðarnafnháttardýrkun ?

 Afkastamikill  öfgabloggari sem mjög  blandar Jóni Sigurðssyni í   krossferð sína  gegn  ESB  segir  jafnan  að kjörorð hans hafi verið : Aldrei  víkja. Þegar Molaskrifari  fyrir  40 árum eða   svo  gerði heimildarmynd um Jón  Sigurðsson fyrir   Sjónvarpið í nánu samstarfi  við fræðimanninn Lúðvík Kristjánsson lagði Lúðvík jafnan   áherslu á  að  kjörorð Jóns hefði verið: Eigi víkja.  Líklega á umræddur  bloggari  erfitt með  að fara rétt  með, í þessu  sem öðru. Lúðvík var allra  fróðastur um líf og  störf  Jóns  Sigurðssonar. Hann var ekki langskólagenginn en  svo sannarlega  fræðimaður af guðs náð.

Hversvegna  skyldi  starfsmannalisti RÚV hafa  verið fjarlægður af  heimasíðu  þessa fyrirtækis sem  sífellt er  verið að  segja okkur að  við eigum öll. Tæknileg vandamál ? Kemur okkur ekki við hverjir  starfa hjá RÚV OHF ?  Vill fyrirtækið ekki að eigendurnir  raski ró starfsmanna   með  tölvupósti ?  Á þessu hlýtur að vera einhver   eðlileg  skýring.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>