«

»

Traust og trúnaður – Icesave lekinn

Líklega hafa  allir blaðamenn upplifað það að vera  trúað  fyrir   viðkvæmum upplýsingum,sem  ekki  væru  til birtingar. Til  dæmis   skýringum  á því hversvegna gæti  verið skaðlegt  almannahagsmunum  eða   rannsóknarhagsmunum (eins og það heitir víst núna)  á þeim tímapunkti að greina frá því sem blaðamaðurinn vissi. Ég held að langflestir hafi virt  þennan trúnað, enda máttu þeir  vita  að sá  sem  trúði þeim  fyrir  upplýsingunum mundi aldrei  treysta þeim  aftur, ef  þeir  ryfu  trúnaðinn. Margir blaðamenn hafa líka upplifað það að  reynt  hefur  verið að misnota þá með því að  leka  til þeirra  röngum  upplýsingum. Þar þurfa  fjölmiðlamenn sífellt að vera á varðbergi. Það er líka   nokkuð  algengt að einkum ungir, lítt  reyndir  athyglisfíklar úr  hópi  stjórnmálamanna reyni að koma  sér í mjúkinn hjá  blaðamönnum með því að leka  til þeirra  trúnaðarupplýsingum. Til þess að eiga hönk upp í  bakið á blaðamanninum  síðar. Innst inni  held ég að heiðarlegir  blaðamenn hafi  skömm  á  slíkum stjórnmálamönnum. Það var rétt sem  Helgi Hjörvar sagði í Kastljósi  RÚV (14.08.2009) að eitt   það  versta   við leka  eins í Icesave málinu  á ögurstundu er að  allir liggja undir  grun. 

En lifandis ósköp  gekk  formanni  Framsóknarflokksins  illa í þessum sama sjónvarpsþætti að  afneita því að hann hefði lekið þessum upplýsingum til  fjölmiðla. Hann var eiginlega svo ósannfærandi sem mest mátti verða.

 Hitt skal  svo  viðurkennt að upp geta komið  tilvik  þar sem almannahagsmunir  eru  svo ríkir  að birta ber  upplýsingar sem yfirvöld vilja    séu trúnaðarmál. Þau  tilvik eru  fá, en  alltof ríkrar tilhneigingar  gætir hjá yfirvöldum að setja  trúnaðarstimpil á mál  sem  engin ástæða  er  til að halda leyndum. 

Icesave lekinn var eitthvert  alvarlegasta  trúnaðarbrot þingsögunnar í áratugi

Að lokum óska ég  Guðbjarti Hannessyni formanni  fjárlaganefndar til hamingju. Hann hefur ekki  átt sældardaga eða sæluvikur að undanförnu. Hann á  heiður skilinn.

1 athugasemd

Ekkert ping ennþá

  1. Sigurður skrifar:

    Þetta mál þarf að klára, það er á hreinu. Undarlegt hversu fljót Samfylkingin var að slá þetta allt út af borðinu. Held það væri henni ekki í hag ef upp kæmist um hver lak.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>