«

»

Molar um málfar og miðla CXXXII

 Nágrannavarsla , segja  vinir  mínir í Garðinum (RÚV 24.08.2009) um það fyrirkomulag  er  menn huga  að óvenjulegum mannaferðum   við   hús  fjarverandi  nágranna.  Gott og  skynsamlegt, en  orðið nágrannavarsla  er klúður. Af hverju ekki Grannagát ?

Vonandi  útskýrir  málsfarsráðunautur  RÚV  fljótlega  fyrir  fréttamönnum  muninn  á orðunum  eftirmáli og  eftirmál. Það liggur við að fréttamenn flaski á þessu í hverri einustu viku.  Í hádegisfréttum RÚV (23.08.2009) var  talað um  tvær minniháttar líkamsárásir sem kunna  að hafa   eftirmála.  Eftirmáli  er niðurlagsorð   eða  texti aftan  við  meginmál.  Eftirmál eru   afleiðingar  eftirköst eða  rekistefna  vegna  einhvers verknaðar. Þetta eru  dæmi úr Íslenskri  orðabók. Fréttamaður hefði átt  að  segja  að  líkamsárásirnar kynnu að hafa í   för  með sér  eftirmál.  Þessi sama ambaga var endurtekin í  sjónvarpsfréttum RÚV  kl 1900.  Annaðhvort  hlustar enginn í Efstaleitinu eða þar heyrir enginn. Nema hvort tveggja sé. 

Í þessum sama fréttaíma   sagði  fréttamaður :…. og vísar til frelsi fjölmiðla. Vísað er til einhvers. Þess vegna hefði átt að segja .. og vísar til  frelsis fjölmiðla. Vísa ætti  þeim  sem  þetta sagði  til vegar um vegi  tungunnar.

Í Morgunblaðinu   bls. 25 (23.08.2009) er auglýsing um ágæti heyrnartækja. Sagt er  að tækin séu Nánast því ósýnileg.  Ekki kann Molahöfundar að meta þetta orðalag. Betur  færi á  því að þarna  væri   sagt að  heyrnartækin væru  nánast ósýnileg  eða  næstum því  ósýnileg. Mér  finnst þetta  enn eitt   dæmi um klaufalegt orðalag  auglýsenda. Hef aldrei heyrt að eittthvað  sé  nánast því  ósýnilegt  eða  sýnilegt.  Kannski  sérviska mín. Mér finnst þetta ótækt orðalag. En það  gæti verið að markaður  væri fyrir þessi ágætu  heyrnartæki í Útvarpshúsinu í Efstaleiti.

5 athugasemdir

Ekkert ping ennþá

  1. Eiður skrifar:

    Grenndargát er betra.

  2. Eiður skrifar:

     Þeir á   Vefdv  eru þungavigtarmenn. Um ástand þeirra fullyrði ég ekkert.

  3. Jóhanna Geirsdóttir skrifar:

    Og hér er önnur perla af dv.is:
    Greinilega ekki ásláttarvilla!

    Piltur um tvítugt sem handtekinn var í gær í Hafnarfirði í tengslum við sprengjuhótun í Borgarholtsskóla játaði við yfirheyrslur í dag að hafa hringt inn hótunina. Um gabb var að ræða en pilturinn var í annarlegu ástandi. –
    … Maðurinn var handtekinn í heimahúsi í Hafnarfirði í gær, eins og áður segir í annarlegu ástandi, og var hann látinn sofa úr sér.

  4. Sverrir Friðþjófsson skrifar:

    Hér er ein perlan frá DV.is :

     

    Abdelbaset al Megrahi. Líbíumenn tóku honum sem hetju og tóku á móti honum með vigtum eftir að skosk stjórnvöld ákváðu að sleppa honum lausum af mannúðarástæðum.

     

  5. Aðalsteinn Geirsson skrifar:

    Þetta hefur ekki plagað mig en ábendingin er góð. En ef grannarnir eru ekki heima passaði grenndargát kannski betur. Annars hittirðu naglann einatt á höfuðið.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>