«

»

Molar um málfar og miðla CXXXVI

   Alþingismaður baðst góðfúslega afsökunar á því að hafa farið í ræðustól eftir að hafa neytt áfengis. Það var gott og blessað en  hefði ef til vill átt að gerast  fyrr. Ekki áttar Molaskrifari sig á notkun orðsins góðfúslega í þessu samhengi. Þingmaðurinn hefði  getað beðist einlæglega eða innilega afsökunar. Hitt  er  svo önnur saga að  langtum fleiri þingmenn hefðu átt að biðja þjóðina  afsökunar  vegna ósæmilegrar framkomu undir  ræðu þingmannsins. Þeirra hlutur var ekki hótinu betri. Kannski höfðu einhverjir þeirra  einnig  verið á bankagolfmóti.

 Annar þingmaður  birtir  þingræðu um Icesave (28.08.2009) á bloggsíðu sinni og viðurkennir heiðarlega, að í henni kunni að vera málvillur.   Molaskrifari nefnir  þó  aðeins  eitt atriði, sem  ýmsir  munu  raunar segja að ekki sé málvilla.  Þingmaðurinn talar um  dropann sem fylli  mælinn.  Mér var kennt að tala um kornið sem  fyllti mælinn.Líkingin er dregin af því er  korn var mælt í málum ( Mergur málsins bls. 495)  Þetta  með  dropann   er þó  býsna útbreitt en er seinni  tíma  fyrirbæri. Ég felli  mig betur  við kornið  en  dropann. En eins og  dropinn holar steininn þá breiðist þetta út og heyrist æ oftar.

Fréttavefurinn AMX („Fremsti fréttaskýringavefur landsins „) spurði (28.08.2009) : Er Ólafur Ragnar klappstýra Icesave eða  sér hann gjánna?  Sennilega sér  Ólafur  Ragnar  gjánna þegar hann er  kominn með  frúnna  yfir brúnna yfir ánna. Þetta var reyndar leiðrétt eftir ábendingu um villuna.

Miklum menningarsögulegum verðmætum bjargaði Jökull Jakobsson með   útvarpsþáttunum Gatan mín,sem nú er verið að endurflytja. Þessir þættir eru ómetanlegir. Er tímabært  að gera nýja þáttaröð af svipuðum toga ? Kannski.

3 athugasemdir

Ekkert ping ennþá

  1. Húsari. skrifar:

    að þeim skyldi ekki > Les: þá skyldi ekki

  2. Eygló skrifar:

    Kannski var hann búinn að fá sér í tánna. Nú eða misst trúnna eftir að hann komst í kynni við þránna.

  3. Húsari. skrifar:

    Sæll Eiður.

    Verða menn ekki stundum góðfúslega við tilmælum um e-ð þó svo að
    þeir séu sjálfir þeirrar skoðunar að þeim skyldi ekki til við einn né neinn ?

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>