«

»

Molar um málfar og miðla CXXXVII

 

Gott er að fá Icesave fyrir aftan sig, sagði íslenskur prófessor,sem starfar í London (29.08.2009). Þetta er auðvitað ekki íslenska, en það er auðvelt að láta enskuna rugla sig í ríminu, því hún er eins og  syndin, lævís og lipur. Það er gott  að Icesave málinu skuli lokið, hefði prófessorinn til dæmis getað sagt.

Netmoggi segir (29.08.2009): Ökumaðurinn er grunaður um meinta ölvun við akstur.  Ha? Er hann ekki grunaður um að hafa ekið ölvaður ? Meira ruglið.

Formaður Framsóknarflokksins á annríkt að því er segir í Vefdv. Hann má ekki vera að því að  svara tölvupósti frá fjölmiðlum. Vefdv segir (29.09.2009): Ef sendur er póstur á tölvupóstfang hans á Alþingi berast þau svör frá ónefndum aðila að Sigmundur Davíð sé búinn að „dragast mjög afturúr í tölvupóstsamskiptum sínum og bað mig að láta vita að hann hefði líklega ekki svigrúm til að svara erindum fyrr en Icesave-málið væri frá á þinginu.  Það var og  Sigmundur  Davíð er búinn að  dragast aftur úr ! Þetta finnst mér klaufalega orðað þótt flestir skilji við hvað er átt. Formaðurinn hefur ekki haft tima  til að  svara tölvupósti. Svörin hafa setið á hakanum.. Það er   svo sem  skiljanlegt. Að dragast aftur úr er annað. Segjum svo að  hópur  fólks  sé í  fjallgöngu, einn  heldur ekki  í við  hópinn. Hann dregst aftur úr. Fylgir ekki hópnum og kemur  síðastur í áfangastað.

Einna lífsseigust allra ambaga  er  orðið áhafnarmeðlimur sem gengur aftur í fréttatímum  vikulega eða oftar og ógerlegt virðist að kveða niður. Reyndur fréttamaður  sagði í hádegisfréttum RÚV (29.08.2009): Einn áhafnarmeðlima er…  Hversvegna ekki  segja: Í áhöfninni er …..

Í helgarútgáfu DV skrifar Jóhann Hauksson um ábyrgð Háskóla Íslands á hruninu. Þar er meðal annars vikið að umdeildri skipan Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar í lektorsstöðu við Háskóla Íslands 1988. Miklar umræður urðu um þessa embættisveitingu og bárust þær m.a. inn í sali Alþingis. Í þeim umræðum  lét Ólafur Þ. Þórðarson, þingmaður Framsóknar orð falla í stuttri athugasemd í þá veru , hvað menn væru eiginlega að þrasa um þetta. Hér  væri engin hætta á ferðum. Tekið  væri  sérstaklega fram að Hannes Hólmsteinn ætti ekki að hafa neina kennsluskyldu ! Ólafur Þ. hitti oft naglann á  höfuðið  og sá  mál frá öðrum sjónarhornum en algengast var. Í DV greininni kemur  fram að  Hannes Hólmsteinn kenni nemum að skrifa  fræðilegar ritgerðir og  að Hæstiréttur Íslands hafi dæmt hann fyrir ritstuld. Einnig kemur  fram að  Hannes  sem margir telja einn af arkitektum  hrunsins og  mesta  frjálshyggjupostulia Sjálfstæðisflokksins  kenni nemendum   um heimskreppuna og framtíð kapítalismans.  —–    Samtímis þessu kennir  bankastjórinn  sem  hannaði Icesave (hina  tæru snilld, sem hann kallaði)  sem nú er að setja Ísland á hliðina,nemendum Háskólans í Reykjavík  einhverskonar fjármálavísindi eða  fjármálaverkfræði.  Skyldu  prófskírteini í þessum greinum frá þessum  tveimur menntastofnunum vera  tekin alvarlega  við  erlenda  háskóla?

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>