«

»

Til háborinnar skammar !

  Ekki veit ég hve oft  hefur verið  vikið að því á þessari síðu hvernig  Ríkisútvarpið, – þetta sem  við eigum öll eins og  auglýsingarnar segja,-  sniðgengur  lögin um bann við  áfengisauglýsingum. Þau  skipti  eru mörg.

  Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum hafa nú farið  fram á opinbera rannsókn á þessu  framferði þjóðarútvarpsins (Fréttablaðið  28.08.2009). Því ber að fagna. Er hér með  skorað á menntamálaráðherra, þá einörðu og ágætu  konu, að  láta hefja slíka rannsókn. Núverandi ástand er til  háborinnar skammar fyrir alla sem  hlut eiga að máli.

 Blygðunarlaust auglýsir  Ríkisútvarpið áfengan bjór  og  réttlætir  gjörðir  sínar með því að orðið léttöl  birtist með örsmáu letri  í hægra skjáhorni í eina sekúndu eða svo.  Stundum eru meira að    segja  auglýstar  bjórtegundir  undir þessu  lélega yfirskini ,sem  eru ófáanlegar eða illfáanlegar öðruvísi en sem áfengi. Þessum auglýsingum verður að linna. Það gæti  ef til vill  leitt  til  einhvers tekjumissis  fyrir RÚV. Það  gæti  svo leitt  til breytinga í bílamálum stofnunarinnar. En það  verður þá bara að hafa það.

1 athugasemd

Ekkert ping ennþá

  1. Margret Einarsdottir Long skrifar:

    Ég er innilega sammála þér. Ef að ég gæti sagt upp áskriftinni að rúv þá myndi ég gera það núna vegna þessara auglýsinga.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>