«

»

Molar um málfar og miðla 2032

AÐILAR ENN OG AFTUR

Aðilar komu mjög við sögu í lögreglufréttum Bylgjunnar á hádegi á laugardag (08.10.2016), –  aldrei þessu vant. Ellefu aðilar voru á staðnum , –  aðili féll í götuna. Er þessu fréttaskrifurum ekki sjálfrátt? Hallast eiginlega að því.

 

RÖKRÉTT HUGSUN

Skólabróðir, sem er áhugamaður um velferð móðurmálsins, og Molaskrifari hafa verið að skrifast á í tölvupósti um móðurmálið. Síðast ræddum við þá málvilllu og rökvillu sem felst í því að tala um að sýning opni eða verslun opni. Skólabróðir  skrifara sagði í bréfi fyrir helgina: ,, Sæll, já þetta er frjótt umræðuefni, þ.e. málfarið, en þetta síðast nefnda (verslanir opna, sýningar opna) er leiðinlegt vegna hins áberandi skorts á rökréttri hugsun og ekki bara vöntunar á íslenskukunnáttu. Ég man að í gamla daga bentu góðir kennarar okkar á að góð íslenskukunnátta væri nauðsynleg forsenda þess að ná viðunandi tökum á erlendum tungumálum. Ég gæti trúað að þú hefðir fundið sönnur fyrir þeirri staðhæfingu. Ég veit ekkert hvað kennarar segja nú orðið. Spakir menn hafa bent á samband máls og hugsunar, sem auðvitað liggur að nokkru leyti i augum uppi, en þeir hafa haft uppi fróðlegar athugasemdir og jafnvel uppgötvanir í því efni. Skarpur skilningur krefst skarprar málkenndar held ég að þeir vísu menn boði og það með réttu. Mér hefur oft dottið í hug að „útlenskukunnátta“ Íslendinga almennt sé minni en menn halda; hún er svo yfirborðsleg og tengd dægurmenningu, verslun og viðskiptum. Ef við bætist að menn hafa ekki lengur viðunandi kunnáttu í móðurmálinu til tjáningar og skilnings getur svo farið að menn verði málvana en e.t.v. ekki alveg mállausir!”. Þakka þessa þörfu hugvekju.

 

GAMLAR AUGLÝSINGAR

Að gefnu tilefni var Molaskrifari að skoða Morgunblaðið frá 19. nóvember 1947. Þar var margan fróðleik að finna.  Þar voru smáauglýsingar á heilli síðu. Auglýsingarnar segja margt um íslenskt samfélag í nóvember 1947.

Þar auglýsti Herrabúðin, Skólavörustíg 2, sími 7575: Án skömmtunar, Kuldahúfur.

Söluskálinn Klapparstíg 11, sími 2926 auglýsti frakka og föt án skömmtunarseðla.

Einhvern vanhagaði um upphlutsmillur, annar vildi kaupa nýjan amerískan ísskáp og sá þriðji vildi kaupa nýjan Chevrolet 1947.

Já, þarna kennir margra grasa.

Liverpool auglýsti olíuvjelar eins og tveggja hólfa og svo var til sölu svört, falleg kápa meða persian skinni nr 42.

En skemmtilegasta auglýsingin var þessi:

 Bílstjórinn, sem talaði við mig í versluninni Ræsir mánudaginn 17. nóv. og ætlaði að láta mig hafa spindilbolta fyrir bremsuvökva, gjöri svo vel að tala við mig sem fyrst. – Júlíus Jóhannesson , Þverholt 18b. –  Þessi auglýsing segir mikið um lífið á Íslandi haustið1947.

 

TIL LESENDA

Þeir lesendur, sem vilja senda mér tölvupóst eru beðnir að nota póstfangið eidurgudnason@gmail.com . Eða einkaskilaboð á fasbók.

 

 

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.

Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, – ESG

 

 

 

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>