«

»

Molar um málfar og miðla 2047

ERLENDIS

Mörgum útvarpsmönnum virðist algjörlega ofviða að nota  atviksorðið  erlendis rétt. Þetta orð er fyrst og fremst  notað um  dvöl erlendis. Hann var erlendis í tólf  ár. Við erum ekki á leiðinni  erlendis eins og útvarpsmaður talaði um í þáttarlok rétt fyrir hádegisfréttir á Bylgjunni (04.11.2016). Við förum til útlanda. Þegar við erum komin útlanda, erum við erlendis.

 

ALL I  WANT …..

Auglýsingableðli  frá  versluninni Ilvu  eða Ilva  var vafið utan um Moggann, sem Molaskrifara barst á föstudag. Efst á þessum bleðli stóð: All I want for  Christmas … en þetta  er tilvitnun  í þekkt ameriskt jólalag. Hversvegna  hefur þessi verslun ekki meiri metnað en svo að nota ensku í  fyrirsögn á auglýsingu í íslenskum fjölmiðli? Ekki tekur betra við á baksíðunni.  Þar eru auglýstir Christmas- aðventuljósastjakar,   Christmas- kertaglös og þetta er kórónað með auglýsingu  um Christmas-jólatré.    CHRISTMAS – JÓLATRÉ Hvílíkt endemis  rugl!

Þessi verslun ber ekki mikla  virðingu fyrir íslenskri tungu. Við ættum ekki að bera mikla  virðingu fyrir þessari verslun. Svo má líka spyrja: Hvaða auglýsingastofa leggst svo lágt að hanna svona auglýsingar?

Molaskrifari hvetur  fleiri til að taka upp hanskann  fyrir móðurmálið og andmæla vaxandi notkun ensku í auglýsingum í íslenskum fjölmiðlum.

 

ÓBOÐLEGT

Það hefur stundum verið nefnt hér  að það er gjörsamlega óboðlegt að allar dagsrárkynningar  Ríkissjónvarpsins skuli teknar upp löngu áður en þær eru fluttar.

Tvö  dæmi  frá  föstudeginum (04.11.2016). Sagt var í dagskrárkynningu að umsjónarmenn Útsvars  væru  Sigmar Guðmundsson og Þóra  Arnórsdóttir. Það var rangt. Áreiðanlega var vitað með margra daga fyrirvara að  þau yrðu ekki umsjónarmenn. Umsjón með Útsvari höfðu Einar Þorsteinsson og Þóra  Arnórsdóttir.

Annað dæmi. Verra.  Um miðbik vikunnar var skýrt frá því í fjölmiðlum að Gísli Marteinn mundi ekki  stjórna föstudagsþætti sínum. Var ógangfær vegna hásinaraðgerðar.  Samt var tönnlast á því í dagskrárkynningum  að Gísli Marteinn væri með þáttinn. Rétt áður en þátturinn hófst var sagt við okkur: Nú fara Gísli Marteinn og gestir hans yfir helstu efni vikunnar í beinni útsendingu.

Bergsteinn Sigurðsson  stjórnaði þættinum.     Vitað var fyrir löngu að Gísli yrði ekki með þáttinn. Samt var haldið áfram að gefa okkur rangar upplýsingar, segja okkur ósatt.

Þetta er óboðlegt. Ókurteisi sem engin alvöru sjónvarpsstöð mundi leyfa sér að sýna áhorfendum. En Ríkissjónvarpið lætur sig hafa það. Til skammar.

 

TIL LESENDA

Þeir lesendur, sem vilja senda mér tölvupóst eru beðnir að nota póstfangið eidurgudnason@gmail.com . Eða einkaskilaboð á fasbók.

 

 

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.

Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, – ESG

 

 

 

 

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>