«

»

Ótrúleg mistök í Kastljósi !

Í Kastljósi  Ríkissjónvarpsins í kvöld var  boðað viðtal  við  aðaldómara í  málinu  gegn Birgi Páli Marteinssyni,sem  dómur var keðinn upp í á  miðnætti sl.  föstudag í Þórshöfn í Færeyjum..

Ekki var  rætt  við  dómarann, heldur var flutt  viðtal við verjanda Birgis Páls, lögmanninn Óla Jakúp Kristoffersen úr færeyska  sjónvarpinu í kvöld. Það  kom margsinnis  greinilega fram  í viðtalinu   að verið var að ræða  við lögmann  Birgis Páls  en ekki dómarann. Hlustaði enginn, skildi enginn?  Engin  skýring , engin  afsökun  í lokin,  bara bless og  sjáumst seinna, eða eitthvað í þeim  dúr. Skelfileg vinnubrögð.

Það er eitthvað alvarlegt að að í  ritstjórn  dægurmálaþáttar , þegar svona  mistök  verða. 

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>