Áhugasömum um frekari fróðleik skal bent á leiðara Ólafs Þ. Stephensens ritstjóra 24 Stunda í dag „Gleymska Guðna“ . Húmoristarnir á ritstjórn blaðsins hafa svo sett bráðfyndna grein Bjarna Harðarsonar alþingismanns Framsóknar um sama efni „Kratar allra flokka og hrátt kjöt“ á síðuna andspænis leiðaranum. Í samhengi er þetta tvennt bráðskemmtilegur og fróðlegur lestur.
PS: Hér í Færeyjum er frjáls innflutningur á kjöti: Hér eru lambahryggir og læri frá Goða við hliðina á lambalærum frá Argentínu og Nýja Sjálandi. Hér fást líka kjúklingar og svínakjöt frá Ítalíu og Dannmörku og er þá fátt eitt nefnt.
Engar fregnir eru af manntjóni af völdum þessa innflutnings.
![]() |
Vilja ekki innflutning á fersku kjöti |
Skildu eftir svar