Það var ágætt að heyra orðið formælandi notað um talsmann Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í fréttum Ríkisútvarps (15.05.2011). Orðið talsmaður er annars algengt og ágætt. Þeir sem telja að konur séu ekki menn hafa búið til orðið talskona. Samkvæmt íslenskri málvenju fornri eru konur menn.
Heilsaði Evrópu með náttúrulegum geislabug, segir á svokölluðu Smartlandi Mörtu Maríu á mbl.is (15.05.2011). Bjarni Sigtryggsson bendir á þetta og segir: ,,Þetta hefði getað verið prentvilla, væri þetta ekki endurtekið í frétt og tilvitnun”. Það var og. Molaskrifari hallast að því að þeim sem skrifa í Morgunblaðið og mbl.is sé stranglega bannað að nota orðið baugur. Hvort sem er með litlum staf eða stórum, eitt sér eða í samsettum orðum. En það er sem sagt enginn bilbugur á þeim Moggamönnum.
Í morgunfréttum Ríkisútvarps (15.05.2011) var sagt frá flóðum í Missisippifljóti. Fréttamaður sagði: Flóðgáttirnar hafa ekki opnað í næstum40 ár. Þetta er rangt. Flóðgáttir opna ekkert, – ekki frekar en kjörstaðir, – þær eru opnaðar.
Sömu ambögurnar heyrast aftur og aftur. Kynnir í Evróvisjóndagskrá Ríkissjónvarpsins (14.05.2011) hélt áfram að sigra keppnina og bætti því nú við að verið væri að segja okkur upplýsingar.
Undarleg fyrirsögn á pressan.is (14.05.2011) Rifrildi leiddi til láts, – nær hefði verið að tala tæpitungulaust og segja: Rifrildi leiddi til morðs.
Úr dv.is (14.05.2011): Karl biðst afsökunar á að hafa nafnbirt eiganda bílsins… Sögnin að nafnbirta er bull. Karl biðst afsökunar á að hafa birt nafn eiganda bílsins…
Úr mbl.is (14.05.2011): Sumaropnun Ylstrandarinnar í Nauthólsvík hófst í dag. Hversvegna ekki: Ylströndin í Nauthólsvík var opnuð í dag ?
Úr mbl.is (14.05.2011): Nú er draumurinn búinn að rætast. Nú hefur draumurinn ræst.
Ríkisútvarpið virðist ekki geta gert upp við sig hvort hljómleikahöllin við höfnina heitir Harpa eða Harpan. Húsið heitir Harpa.
Að vera á tánum, í merkingunni að vera á varðbergi, gæta sín gagnvart e-u , virðist vera viðurkennt og velmetið mál í Ríkisútvarpinu. Í fréttum (15.05.2011) var talað um að matvælaframleiðendur , .. séu meira á tánum. Molaskrifari er þessu ósammála. Honum finnst þetta ambaga.
Stöð tvö hefur um langt skeið sýnt fréttaskýringaþáttinn 60 mínútur frá CBS í Bandaríkjunum. Þetta er einn besti fréttaskýringaþáttur,sem völ er á í sjónvarpi. Merkilegt að Ríkissjónvarpið skuli ekki hafa sýnt þessum þáttum áhuga. Á upphafsárum sjónvarps voru sýndir bresku fréttaskýringaþættirnir Panorama, sem voru vandað efni. Ekkert slíkt efni er nú á dagskrá Efstaleitissjónvarpsins.
3 athugasemdir
Ekkert ping ennþá
Jón Óskarsson skrifar:
17/05/2011 at 20:47 (UTC 0)
Rekstaraðilar Hörpu nota orðið jöfnum höndum með og án greinis.
Þetta má lesa á heimasíðum þeirra
http://www.harpa.is
http://www.austurhofn.is/
Sigurður Karlsson skrifar:
16/05/2011 at 12:50 (UTC 0)
„Hefðu þurft að ganga lengur“ sagði í fyrirsögn á fréttavef RÚV í gær.
Í fréttinni sjálfir er hins vegar haft eftir formanni Samtaka íslenskra fiskimanna að honum finnist stjórnvöld hafa átt að „ganga lengra“ varðandi veiði heimildir strandveiðimanna.
Ætli fréttamanni hafi þótt ástæða til að leiðrétta málfar fiskimannsins? Eða finnst honum kvótafrumvörpin ekki hafa verið nógu lengi í fæðingu og stjórnvöld hefðu átt að ganga lengur með þau?
Qaja skrifar:
16/05/2011 at 12:29 (UTC 0)
Húsið heitir vissulega Harpa en það er gömul íslensk hefð að bæta greini aftan við sérstakar byggingar og stofnanir. Dæmi um þetta er til dæmis Landspítalinn, Ráðhúsið og núna Harpan.
Með kveðju