Las í Mogga um liðna helgi grein eftir Indriða Aðalsteinsson á Skjaldfönn þar sem hann segir um Jón Kristjánsson, alþingismann og fyrrverandi ráðherra:
„Líklega hefði hann aldrei átt að hætta sem innanbúðarmaður hjá Kaupfélagi Héraðsbúa.“ Þetta rifjaði upp fyrir mér ummæli Sverris Hermannssonar í ræðustóli á Alþingi upp úr 1980,sem hafa setið mér í minni allar götur síðan.. Sverrir var að skattyrðast við þennan sama Jón Kristjánsson og kallaði hann „pakkhúsmann af Héraði“.
Í orðunum fólst að pakkhúsmaður af Héraði ætti ekkert að vera að derra sig á Alþingi.
Þessi ummæli fyrrum formanns Landssambands verzlunarmanna, voru hreint ekki hugsuð Jóni Kristjánssyni til vegsauka.
Það er makalaust þegar rökþrota menn grípa til þess að gera lítið úr þeim sem gegnt hafa störfum sem þessum. Veit ekki betur en hvoru tveggja séu heiðarleg störf og ekki efast ég um að Jón Kristjánsson hafi gegnt sínum störfum fyrir Kaupfélag Héraðsbúa með heiðri og sóma, sá ágætismaður sem hann er.
Þessi ummæli segja nákvæmlega ekkert um Jón Kristjánsson,en heilmikið um Indriða Aðalsteinsson og Sverri Hermannsson.
Skildu eftir svar