Andlegur leiðtogi Búddista í Tíbet Dalai Lama er í einkaheimsókn á Íslandi. Það var svolítið ánalegt þegar einn aðstandenda þessarar heimsóknar sagði í viðtali við Ríkisútvarpið: Við erum bara að flytja Dalai Lama inn. Annars þykir mér hlutur Fréttastofu Ríkisútvarpsins í þessari einkaheimsókn Dalai Lama býsna sérkennilegur.
Þessari einkaheimsókn eru gerð betri skil hjá Fréttastofu RÚV en mörgum opinberum heimsóknum erelndra þjóðhöfðingja. Ríkisútvarpið sendi tvo starfsmenn til Indlands til að ræða við Dalai Lama áður en hann heimsótti Ísland með fjölmennu föruneyti. Eitthvað hefur það ferðalag kostað, – greiddi kannski einhver annar aðili ferðakostnaðinn. Ef svo er, ber RÚV skylda til að upplýsa áhorfendur um það. Sá sem þetta skrifar hefur oftlega gagnrýnt forseta lýðveldisins , en það er fáránlegt að gagnrýna forseta Íslands fyrir að vera ekki á landinu, þegar þessi andlegi leiðtogi Tíbeta kemur í einkaheimsókn. Ekki ber forsætisráðherra né öðrum ráðherrum sérstök skylda til að funda með þessum ágæta manni þegar hann kemur hingað í einkaerindum. Samt hefur næstum því hver einasti fréttatími RÚV verið notaðaur til að hnýta í ráðherra fyrir að hitta ekki Dalai Lama.
Einn af fréttamönnum RÚV hefur skrifað sérstaka grein í Morgunblaðið til að skamma forsætis- og fjármálaráðherra vegna þeirrar stefnu sem Ísland hefur fylgt gagnvart Kína um langt árabil og segist skammast sín fyrir að vera Íslendingur. Slík greinaskrif eru óvenjuleg og með þeim dæmir þessi fréttamaður sig úr leik úr leik í allri umfjöllun í fréttum RÚV um Tíbet og Kína.
Ekki efast ég um að Dalai Lama er hinn mætasti og merkasti maður. Ég geri hreint ekki lítið úr því. Bækur Pico Iyers um Dalai Lama , t.d. The Open Road, eru áhugaverður lestur. Á engan hátt skal lítið gert úr Dalai Lama, en það er rangt að misnota opinbera fréttastofu í hans þágu. Eru einhver sérstök tengsl milli Fréttastofu RÚV og þeirra sem standa að þessari einkaheimsókn ? Það er áleitin spurning.
6 athugasemdir
Ekkert ping ennþá
Eiður skrifar:
05/06/2009 at 19:23 (UTC 0)
Eftir minni máltilfinningu er þetta hvoru tveggja í lagi. En ef til vill er eðlilegra að hafa viðtengingarháttinn.
Silja skrifar:
05/06/2009 at 17:59 (UTC 0)
,,Ekki efast ég um að Dalai Lama er hinn mætasti og merkasti maður.“
Er ekki betra að segja ,,Ekki efast ég um að Dalai Lama sé hinn mætasti og merkasti maður“?
Spyr því ég er ekki viss um þetta sjálf 🙂
Jón Óskarsson skrifar:
03/06/2009 at 17:14 (UTC 0)
Þetta var þarft innlegg og ber að þakka það.
Umfjöllun RÚV um Dalai Lama og hvernig fréttastofan reyndi ítrekað að gera ráðherra að sakamönnum fyrir að vilja ekki staðfesta fundi með honum og reyna að telja þjóðinni trú um að þetta væri eitthvað sem þeim bæri að gera var stofnuninni til skammar.
Það er ekki bara á málfarssviðinu sem sumir fréttamenn eru ekki starfi sínu vaxnir heldur gera þeir sér ekki grein fyrir hvar mörk frétta og auglýsinga liggur.
Svo hitt eins og þú bendir á þá hafa þeir sumir fréttamanna ekki hlutleysishugtakið alveg á valdi sínu og fara offari í að koma sjónarmiðum sínum fram í fréttum.
Eins og sagt er: Það þarf að hreinsa víðar til en í bakakerfinu.
DoctorE skrifar:
03/06/2009 at 14:39 (UTC 0)
Dalai Lama er bara gamall karl í teppi.. alger óþarfi að ræða við karlinn.. .sérstaklega þegar horft er til þess að munkar voru síst skárri en kínverjar.
Eiður skrifar:
03/06/2009 at 07:52 (UTC 0)
Takk fyrir þetta Lana Kolbrún. Þetta er með því allra versta sem ég hef séð. Hreint út sagt ótrúlegt!
Lana Kolbrún Eddudóttir skrifar:
02/06/2009 at 22:32 (UTC 0)
Þetta er með kveðju frá þýðingadeild vísis.is – birt kl. 21:36 – hvernig líst þér á ?
Mynd af risa marglyttu hefur birst á breskum akri í Kingstone Coombes, Oxfordskíri en ekki er vitað hvernig hann komst þangað, það er að segja, hver bjó hann til. Um er að ræða svokallað hringamynstur en á frummálinu heitir það Crop Circle. Margir telja að þeir séu búnir til af risavöxnum geimskipum eða framandi verum. Það var svo nú nýlega sem risastór marglytta birtist á akrinum en hún er um 600 fet. Ekki er vitað hvernig eða hver bjó þessa risa marglyttu til. Það hefur verið sýnt fram á að fólk geti búið til slíka hringi hafi þeir metnað til. Þó vilja hinir trúuðu meina að einhverjir þessara hringja og mynstra sé ekki hægt að útskýra með jarðneskum hætti. Þeir sem hafa áhuga má lesa frásögn The Sun af málinu.