Framíköll hafa lengi tíðkast á Alþingi. Fram undir þetta hafa þau takmarkast við hnyttin innskot, sem kannski hafa slegið ræðumann svolítið út af laginu en vakið kátínu í þingsalnum. Nú eru hinsvegar svo komið að stjórnarliðar fá ekki lengur hljóð í ræðustóli fyrir taugaveiklunarframíköllum þingmanna Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Þetta er auðvitað virðingarleysi fyrir skoðunum annarra, virðingarleysi fyrir Alþingi og virðingarleysi fyrir þeim sem heima sitja og fylgjast með umræðum í sjónvarpi.
Þingmenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hegða sér eins og óþekkir krakkar. Forðast málefnalegar umræður og vilja helst ekkert ræða nema fundarstjórn forseta og störf þingsins. Undir þeim dagskrárliðum fara þeir út og suður ræða allt milli himins og jarðar og brjóta lög um þingsköp. Þarna eru þingmenn Framsóknar sýnu verstir. Það er eins og þeir haldi að þeir séu staddir á málundi í unglingaskóla en ekki á löggjafarsamkomu þjóðarinnar. Það vekur athygli margra , að þingreyndasti þingmaður Framsóknar Siv Friðleifsdóttir tekur ekki þátt í þessum fíflagangi flokksbræðra og systra sinna.
5 athugasemdir
Ekkert ping ennþá
Eiður skrifar:
01/07/2009 at 12:57 (UTC 0)
Bæti því við, að ég hef heldur ekki sé nýjan þingmann, Guðmund Steingrímsson, taka þátt í fíflaganginum. Það er honum til hróss.
Oddur Ólafsson skrifar:
30/06/2009 at 21:49 (UTC 0)
Simmi Doomsday yrði góður í samningunum.
Hann myndi kýla Gordon Brown kaldan.
En hvað hefur SDG annars gert um ævina? Samið um kaupið í Kastljósi?
Hvaða störf hefur hann unnið?
Ína skrifar:
30/06/2009 at 20:35 (UTC 0)
Ég hef tekið eftir þessu líka. Það er eins og einhver skríll sé mættur þarna í þingsal. Framsóknarmenn eru eins og krakkakjánar og ég tók eftir því í gær að ný framsóknarþingkona talaði með sérlega leiðinlegum tón úr ræðustól sem mér fannst beinlínis dónalegur. Ég myndi aldrei kjósa þetta fólk til forustu því þau virðast ekki átta sig á í hverju starf þeirra er fólgið á alþingi. Gagnrýna en koma ekki með nein málefnaleg rök fyrir neinu. Svo vogar Sigmundur Davíð sér að segja að ef Icesave verði samþykkt þá þurfi að koma þessari stjórn frá !!! Bíddu, hvað eru þau mörg? Hvað heldur hann eiginlega að hann sé? Kjáni !
Jón Óskarsson skrifar:
30/06/2009 at 15:24 (UTC 0)
Þetta er fólkið sem vill gera betri samning við Breta og Hollendinga.
Alkunnir mannasiðir Eyglóar Harðardóttur og Sigmundar Davíðs kæmu okkur langt.
Eða hitt þó heldur!
Mr. Jón Scout Commander skrifar:
30/06/2009 at 14:39 (UTC 0)
Vil taka undir þetta og oft er eins og lamið sé í borðin í salnum með einhverjum hætti.
Þetta er mjög hvimleitt og þreytandi til lengdar.