«

»

Sífelldur skollaleikur

Stjórnarandstöðuflokkar á Íslandi hegða sér á  annan veg en  stjórnarandstaðan gerir á  Norðurlöndunum.  Hjá Sjálfstæðisflokknum  snýst þetta um að  djöflast gegn öllu sem  ríkisstjórnin  gerir,  sjá hvergi neitt nema  svartnætti  og  djöfulskap,sem er  eins og   sagt var „hænufet  frá landráðum”. Stjórnarandstaðan er í sífelldum skollaleik.

 Hjá  Framsókn er hinn óreyndi þingflokkur mest í fíflagangi, vill helst  tala um  fundarstjórn forseta og fer þá út og  suður. Þar eiga þó ekki  allir þingmenn  þess  flokks óskipt mál. Eftir átján ára stjórnarsetu  kunna  Sjálfstæðismenn ekki annað en  að vera í stjórn. Þeir umhverfast í stjórnarandstöðu. Einstaklingar sem  annars eru   sæmilega dagfarsprúðir og   tiltölulega hófstilltir  fara  hamförum í ræðustóli  , baða út   öngum og hafa í frammi mikla háreysti. Hinn ungi þingflokkur Framsóknar  bölvar og ragnar og hefur klámyrði í flimtingum.Stjórnarandstaðan gefur  stjórnarliðum ekki  hljóð.  Frammíköll eru ekki ný á þinginu,  en  látlaust  gjamm og  hávaði er óþörf nýlunda.     Þau setja  ræðumann   kannski svolítið  út  af laginu  en  sé hann með  á nótunum og  snöggur  að hugsa  snýr hann frammíkallinu oft upp í háðung  fyrir þann sem kallaði   frammí. Núverandi stjórnarandstaða   er  gjörsneydd kímnigáfu og  því  verða  frammíköllin aldrei annað en  truflun og skarkali.     sem þetta ritar  man  vel  stjórnarandstöðu  Sjálfstæðisflokksins á árunum  1988  til 1991. Þá  var geðillska þeirra með ólíkindum. Ég var þá   formaður  allsherjarnefndar  efri deildar. Þangað kom frumvarp , afar vel undirbúið,  valinkunn kona hafði verið  formaður nefndarinnar sem  samdi frumvarpið.  Einn af fulltrúum Sjálfstæðisflokksins í  nefndinni  vildi senda  frumvarpið  til umsagnar eitt  hundrað aðila.  Margir þeirra höfðu komið að  samningu  frumvarpsins.  Tilgangurinn var     einn að  tefja málið. Í annað  skipti  kom  fulltrúi  SÍS á  fund  nefndarinnar  að beiðni okkar  vegna  frumvarps  sem  var til afgreiðslu.   Honum ofbauð   framkoma   eins  nefndarmanna og hann stóð upp og  kvaddi.  Það kom í hlut  formanns   hlaupa á eftir honum  fram á gang í Þórshamri og  biðjast afsökunar  fyrir  hönd  nefndarinnar. Það er ekki nýtt að Sjálfstæðismenn ærist í  stjórnarandstöðu. Þeir  telja  sig fædda og útvalda til að stjórna. Þeir kunna  ekki að taka    því mótlæti sem  það er að vera í stjórnarandstöðu, enda margir  silfurskeiðarmenn frá  fæðingu. Rifja upp að lokum það sem  Allaballi  sagði við mig eitt sinn á síðkvöðli: Það er  allt í  lagi að vera í stjórnarandstöðu, – það verst hvað það er  andskoti leiðinlegt !   

7 athugasemdir

Ekkert ping ennþá

  1. Björn Finnbogason skrifar:

    Eiður minn! Eitt getum við  þó verið sammála um, að óþolandi er að geta ekki lesið íslensku í dagblöðunum.

  2. Jón Þór Helgason skrifar:

    Bíddu nú við.

    Þú varst sem sagt ekki var við frammíköllinn fyrir áramót? þegar vinstri grænir sátu í stjórnarandstöðu. ég skil ekki ykkur krata (samfylkingarmenn) að halda ekki uppi vörnum gegn ofríki Breta og Hollendinga við okkur.  Stjórnarliðar eru búnir að haga sér eins og aumingar gangvart ESB og er sama um þjóðina. Það er gaman að sjá Eirik Bergmann vera að bakka núna með skoðanir sínar vegna Icesave.  Hann er búinn að átta sig á að kratarnir eru að synda á móti straumnum.

    En Össur og félagar eru ekki hættir, þeir ætla að láta Íslendina borga inngjöngugjaldið fyrir ESB fyrir sig. Stór hluti af lykilfólki í Samfylkunni er það illa menntað og vanhæft að það fær ekki vinnu nema að fara í alþjóðastofnanir eins og ESB. og þá í gengum klíku!

    Sendiráðinn taka ekki við fleyrrum afdönkuðum stjórnmálamönnum að sinni.

    kv.

    Jón Þór

  3. Steini Briem skrifar:

    Aldrei af þeim drögum dám,
    dæmalaust er þeirra klám,
    varla Eygló valinkunn,
    í vor fékk hjá mér falleinkunn.

  4. Ólafur Ingi Hrólfsson skrifar:

    ég var farinn að halda að Guðlaugur Þór og Þór Saari væru einir í stjórnarandstöðunni þannig að þetta eru góðar fréttir –

    hvar er það sem Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn eru að tjá sig?

    Ólafur I Hrólfsson

  5. Sólveig Þóra Jónsdóttir skrifar:

    Vinna sín verk fyrir okkur Maí? Að samþykkja þennan Icesave samning er að taka þátt í landráði.

  6. Eygló skrifar:

    Ég er sammála þessum pistli, sérstaklega þreytandi og kjánaleg læti, tilgangslaus nema til að gera sjálfa sig ómerkilegri og trufla ræðumenn.

    Reyndar finnst mér „aðrar“ stjórnarandstöður stundum hafa gert sig að fíflum.

    Skil ekki að fólk leyfi ekki sitjandi stjórnarmönnum að vinna sín verk… fyrir okkur.

  7. Sólveig Þóra Jónsdóttir skrifar:

    Ég tel að það sé vel l skiljanlegt að stórnarandstaðan sé á móti máli eins og Icesave samningum sem myndi setja okkur, börn okkar og barnabörn í afar mikla skuldsetningu. Svo ert þú að fárast yfir að stjórnarandstaðan sé með æsing. Halló það er verið að tala um framtíð okkar Íslendinga. Þeir mættu láta meira  í sér heyra heldur en hefur verið. Svo má Ásta á bjöllunni hugsa sinn gang.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>