Í hádegisfréttum Rúv (08.08.2009) var sagt frá ólátum við lögreglustöðina í Reykjavík. Þá sagði fréttamaður: Að sögn lögreglu á mótmælandi að hafa sparkað í höfuð lögregluþjóns. Hversvegna þetta orðalag ? Sagði lögreglan ekki að mótmælandi hefði sparkað í höfuð lögreglumanns' ?Hér er fréttastofa RÚV að draga taum mótmælenda og draga frásögn lögreglunnar í efa .Mótmælendur hafna frásögn lögreglunnar.Það sjónarmið kom fram. Þetta voru ekki fagleg vinnubrögð.
Fyrsti vinningur kvöldsins er er svo mikið sem.. sagði Lottókynnir (08.08.2009) í sjónvarpi. Eðlilegra hefði verið að segja: Fyrsti vinningur kvöldsins er hvorki meira né minna en…
Er ekki alveg viss um að ég hafi heyrt rétt í sjónvarpsauglýsingu (08.08.200) um ágæti tómata. En mér heyrðist sagt: .. meira en 60 milljón tonn eru versluð árlega. Ljótt er ef ég heyrði rétt..
Beygingafælnin er söm við sig. Sagt var sjónvarpsfréttum RÚV (08.08.2009). Gift átti innan við 1% í Kaupþing. Sama villan er á vef RÚV,Fréttin var annars góð úttekt á Giftarhneykslinnu þar sem nokkrum sérvöldum stjórnmálamönnum og athafnamönnum tókst að breyta 60 milljarða ( er það ekki rétt tala?) eign í 45 milljarða skuld og snuða 60 þúsund viðskiptavini. Það hefur verið ótrúlega lítið um þetta mál fjallað, en vonandi er það að breytast. Þetta er eitt ógeðfelldasta dæmið um samtvinnun pólitískrar spillingar og viðskipta sem lengi hefur litið dagsins ljós. Og eru þó líklega ekki öll kurl mkomin til grafar.
Skildu eftir svar