Í Þórshöfn í Færeyjum er frítt í strætó, – fyrir alla. Engin skírteini. Ekkert vesen. Þetta hefur gefist svo vel, að nýlega var ferðum fjölgað og þjónusta bætt.
Í Reykjavík er rætt um að fjölga þeim sem fá frítt far en láta suma borga. Fróðlegt væri ef reiknað væri út hver kostnaðurinn er við skírteini, kortasölu, umsjón með fjármunum, etc, etc. Gæti verið að sá kostnaður slagaði hátt upp þær tekjur, sem í vændum eru frá þessum tiltölulega fáu borgandi farþegum ?
Ef raunverulegur áhugi er á því að fá fólk til að skilja bílinn eftir heima og taka á strætó þá á að hætta þessari takmörkuðu innheimtu. Þá fyrst er líklegt að farþegum fjölgi .
2 athugasemdir
Ekkert ping ennþá
Gísli Baldvinsson skrifar:
20/02/2008 at 20:37 (UTC 1)
Jamm, við fundum þetta upp…sko
Berglind Steinsdóttir skrifar:
20/02/2008 at 20:36 (UTC 1)
Það hlýtur að vera bara tímaspursmál hvenær menn átta sig í Reykjavík. Tilraunin á Akureyri gekk svo vel að verkefnið var framlengt. Ég vissi ekki að Færeyingar væru svona framsýnir, gott að sjá það. Höldum þessu vakandi, þetta SKAL koma með kalda vatninu.