Stundum finnst venjulegum skattborgara að snilldinni sem býr í Ráðhúsinu við Tjörnina og reyndar einnig á næsta bæ, Alþingishúsinu. séu næsta lítil takmörk sett.
Í Ráðhúsinu er talað um að gera nýjan flugvöll á Hólmsheiði eða á Lönguskerjum úti í hafsauga. Snertispöl frá Hólmsheiðinni er Keflavíkurflugvöllur, einn stærsti og fullkomnasti flugvöllur við norðanvert Atlantshaf. Samt ræða menn í alvöru um Hólmsheiðarflugvöll eins og milljarðar af skattfé borgaranna skipti engu máli frekar en stöðumælaklinkið í buddunni.
Svo kemur fram tillaga á Alþingi um lestarsamgöngur við Keflavík. Er nú ekki rétt að ljúka tvöföldun Reykjanesbrautar, svo brösuglega ,sem það hefur gengið, áður en menn fara að tala um lestir út og suður.
Fyrir örfáum árum var hagkvæmni lestar til Keflavíkur könnuð. Man ég ekki betur en stofnkostnaðurinn hafi verið metinn á fjórða.milljarð. Og þótt svo hann væri afskrifaður á einu bretti mundi árlegt tap vera á þriðja hundrað milljóna króna. Séu þessar tölur rangar má gjarnan leiðrétta það.Stundum er talað um gullfiskaminni kjósenda. En það fyrirbæri er víðar að finna. Hvernig væri að menn kynntu sér hvernig Norðmönnum hefur gengið að láta lestina milli Oslóar og Gardemoenflugvallar bera sig? Samt er hún hluti af gömlu og grónu lestakerfi í Noregi.
Stundum er eins og mönnum sé ekki sjálfrátt, hvorki við Tjörnina né Austurvöll.
Skildu eftir svar