Athyglisverð viðtöl voru flutt í morgunþætti Rásar tvö (03.03.2010) um Herbalife,sem kallað er fæðubótarefni. Annarsvegar var rætt við rólegan og yfirvegaðan prófessor, sem ásamt fleiri læknum hefur rannsakað aukaverkanir Herbalife. Hinsvegar var rætt við óðamála, og allt að því dónalegan, höfuðpaur Herbalife innflutnings. Aldeilis dæmalaust. Þessi tvö viðtöl mundu henta vel sem dæmi í kennslu í …


