Bjartsýnn var Molaskrifari á að fréttamönnum tækist að tala rétt um það hvenær kjörstaðir væru opnar og hvenær þeim væri lokað í þjóðaratkvæðagreiðslunni a laugardaginn var. Bjartsýnn þar til hann hann heyrði þrautreyndan fréttamann á Stöð tvö segja (06.03.2010): Kjörstöðum lokar klukkan tíu í kvöld. Kjörstöðum lokar ekki, kjörstöðum var lokað klukka tíu um kvöldið. …
Monthly Archive: mars 2010
Molar um málfar og miðla 268
Í fréttum beggja sjónvarpsstöðvanna (03.03.2010) var talað um að skipa bráðabirgðastjórn yfir bankanum (VBS). Þetta samræmist ekki máltilfinningu Molaskrifara. Honum finnst eðlilegra að tala um bankanum hafi verið skipuð bráðabirgðastjórn, eða að bráðabirgða stjórn hafi verið skipuð,eða sett, yfir bankann. Nú má vel vera að þetta sé rangt hjá Molaskrifara. Fróðlegt væri að fá viðbrögð …
Molar um málfar og miðla 267
Prýðileg umfjöllun um Færeyjar var í þeim langlífa og ágæta þætti Steinunnar Harðardóttur Út um græna grundu á Rás eitt í Rúv (06.03.2010). Þar var rætt við Sigrúnu Valbergsdóttur, sem þekkir manna best til vel til í Færeyjum og er þar tíður gestur. Umsjónarmaður hefði þó mátt nota nýrri tölur en frá 2006 um íbúafjölda.Tölur frá 2009 …
Molar um málfar og miðla 266
Athyglisverð viðtöl voru flutt í morgunþætti Rásar tvö (03.03.2010) um Herbalife,sem kallað er fæðubótarefni. Annarsvegar var rætt við rólegan og yfirvegaðan prófessor, sem ásamt fleiri læknum hefur rannsakað aukaverkanir Herbalife. Hinsvegar var rætt við óðamála, og allt að því dónalegan, höfuðpaur Herbalife innflutnings. Aldeilis dæmalaust. Þessi tvö viðtöl mundu henta vel sem dæmi í kennslu í …
Molar um málfar og miðla 265
Kunna menn ekki lengur að leggja saman? Í kvöldfréttum útvarps (01.03.2010) var greint frá afstöðu almennings til Icesave laganna,sem forsetinn neitaði að undirrita. Sagt var að 74% væru á móti, 19% með og 8% ætluðu að skila auðu. Þetta eru samtals 101%! Þessar röngu tölur voru svo endurteknar á mbl.is og vísað í fréttir RÚV og …


