Í tíufréttum Ríkisútvarpsins (16.06.2010)sagði fréttaþulur okkur frá knattspyrnukappleik milli Suður Kóreu og Úrúgvæ. Þegar fram í fréttina kom var leikurinn hinsvegar milli Suður Afríku og Úrúgvæ ( sem var hið rétta). Enn eitt dæmið um þann vonda sið sumra fréttamanna að hlusta ekki á það sem þeir lesa, heldur lesa vélrænt, – eins og vélmenni. …


