Í hádegisfréttum Bylgjunnar (19.06.2010) var sagt frá brúðkaupi sænsku prinsessunnar Viktoríu og hennar tilvonandi eiginmanns. Í fréttinni var sagt frá hátíðartónleikum með þessum orðum: Tónleikunum lauk með barnakór… Þetta orðalag er út í hött. Tónleikunum lauk með söng barnakórs, eða með því að barnakór söng. Sami féttamaður talaði í sömu frétt um að ganga í …


