Í Morgunblaðinu segir frá því í tveimur nær samhljóða fréttum á forsíðu og blaðsíðu fjögur (07.10.2010) að dæmi séu um að fólk á efri árum taki sparifé sitt út úr banka og geymi í bankahólfi. Molaskrifari nefnir, að þetta er fólkið sem fjölmiðlar kalla stundum fjármagnseigendur í afar neikvæðu samhengi. Í Útvarpi Sögu þennan sama dag …
Monthly Archive: október 2010
Molar um málfar og miðla 425
Lánið fellur á gjalddaga , sagði íþróttafréttamaður Stöðvar tvö (06.10.2010). Lán falla ekki á gjalddaga, heldur falla lán í gjalddaga, ef þau eru ekki greidd á réttum tíma. Eindagi er gjalddagi, síðasti dagur sem unnt er að greiða skuld án þess að á hana falli dráttarvextir eða annar kostnaður. Vinsamleg ábending til Kastljóss: Umræður um …
Molar um málfar og miðla 424
Úr mbl.is (05.102010) Rétt áður en mótmælunum lauk reyndu tveir ungir menn að bera garðbekk á bálkest sem slökkt hafði verið í á Austurvöll en gáfust upp á miðri leið. Ögn betra hefði verið að skrifa: Rétt áður en mótmælunum lauk reyndu tveir ungir menn að bera garðbekk á bálköst,sem slökkt hafði verið í á …
Molar um málfar og miðla 423
Molaskrifari hélt, að sér hefði misheyrst, þegar fréttamaður Ríkissjónvarps (04.10.2010) spurði forsætisráðherra hvort hún vildi ekki stíga fram á svalir Alþingishússins og ávarpa mannfjöldann á Austurvelli? Fréttamaður hefði alveg eins getað sagt: Má ekki bjóða þér út á svalirnar svo þú geti fengið golfkúlur og grjót í hausinn, – svona í tilefni dagsins ? Þetta var út úr …
Molar um málfar og miðla 422
Þið eruð opnir til klukkan hvað? Svona spurði þáttastjórnandi í Útvarpi Sögu (02.10.2010). Ansi eru þeir margir,sem ekki ráða við sögnina að opna. Þessi þáttastjórnandi er illa haldinn af þágufallssýki, slettir ensku í tíma og ótíma (myndin á að vera svona memo!).Mesti bögubósi. Annars er makalaust að hlusta á útvarpsþátt þar sem átölulaust er hvatt til …
Molar um málfar og miðla 421
Ríkissjónvarpið féll á prófinu í gærkveldi (02.10.2010). Hinn nýi skemmtiþáttur, Hringekjan, stóð ekki undir væntingum.Svo ófyndinn, sem mest má verða. Hversvegna var verið að þvælast til Vestmannaeyja? Meira en lítið klént. Það kemur ekkert í staðinn fyrir Spaugstofuna. Þingheimur hefur nýlokið við að ganga inn í Dómkirkjuna, sagði fréttamaður Ríkissjónvarps (011.10.2010). Nýlokið við að ganga inn …
Molar um málfar og miðla 420
Héðinsfjarðargöngin opna formlega á laugardag, sagði reyndasti fréttaþulur Stöðvar tvö (30.09.2010) Spurt er: Hvað ætla Héðinsfjarðargöngin að opna? Göngin opna hvorki eitt né neitt. Eins og hér hefur senn verið sagt svona þúsund sinnum. Þau verða opnuð. Fréttamaður Stöðvar tvö notaði sama orðalag í framhaldi af þessum inngangi. Með endemum. Sami fréttamaður sagði um jarðgöngin, að …
Molar um málfar og miðla 419
Skrifað er á pressan.is (29.09.2010): …en stöðvarnar höfðu deilt um hvort fyrrnefnda stöðin bæri skylda til þess. Hér hefði átt að segja:… hvort fyrrnefndu stöðinni bæri skylda til þess. Máltilfinning ekki til staðar. Við erum áratug eftir á, sagði fréttamaður Stöðvar tvö (30.09.2010) og átti við, að við værum áratug á eftir þeim, sem um …


