Molar um málfar og miðla 521

Ferðaþjónustan fullsödd af dýrum  mat , er fín   forsíðufyrirsögn í Fréttablaðinu (004.02.2011). Molaskrifari las það einhversstaðar, að vefurinn ring.is  hafi verið tilnefndur til  íslensku vefverðlaunanna. Það  þykir Molaskrifara skrítið. Orðið  ring er  nefnilega ekki  íslenska  heldur enska.  Það er ekkert til ,sem heitir um tuttugu og níu  manns eins og sagt var í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins (03.02.2011). Tuttugu og níu …

Lesa meira »

Að deila við dómarann

  Á einveldistímanum mátti ekki gagnrýna einvaldinn, orð hans  eða gjörðir. Það sama hefur líklega  gilt um dómstólana ,sem voru í vasa einvaldsins. Nú á tuttugustu og fyrstu öldinni ætlar mætasta fólk af göflum að ganga, ef einhver  leyfir sér að gagnrýna  þá niðurstöðu Hæstaréttar  að ógilda kosninguna  til Stjórnlagaþings, – kosningu sem  mörgum á …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 520

Það er alvarlegt áfall fyrir  trúverðugleika Morgunblaðsins,sem fréttamiðils, að uppsláttur blaðsins (31.01.2011) um að blaðamaður DV   hafi  stöðu grunaðs manns í tilteknu málu  skuli hafa verið uppspuni. Það tekur langan tíma fyrir  fjölmiðla  að endurvinna traust,  þegar þeir  bregðast  trausti lesenda sinna. Merkilegt fréttamat hjá Fréttastofu Ríkisútvarpsins, að  það skuli vera fréttaefni, að tiltekinn blaðamaður …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 519

  Góðvinur Mola, Bjarni Sigtryggsson,  benti á  eftirfarandi  á  dv.is (31.01.2011) Frá janúarbyrjun ársins 2002 og til nóvemberloka árið 2010 ullu ökumenn sem voru sjúkir, þreyttir eða undir áhrifum löglegra lyfja 30 banaslysum og 69 alvarlegum slysum.  ….Það ár ullu ökumenn í þessum hópi alls 152 slysum.  Sá  sem  skrifaði þessa frétt má eiga  það …

Lesa meira »

Árás Morgunblaðsins

 Enn ræðst Morgunblaðið að embættismönnum utanríkisþjónustunnar í nafnlausum leiðara. Enn færir  blaðið í málflutningi  sig  nær  hinu gamla  málgagni íslenskra kommúnista , Þjóðviljanum , þegar hann var sem verstur.  Morgunblaðið beinir í dag spjótum sínum að  Stefáni Hauki Jóhannessyni aðalsamningamanni Íslands í aðildarviðræðunum við  Evrópusambandið og   leiðarahöfundur  beitir orðbragði  götustráks. Gamli Þjóðviljinn uppnefndi líka   þá …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 518

 Þættir Jónasar Sen , Átta raddir,  eru skrautfjöður í annars heldur fátæklegum hatti  Ríkissjónvarpsins. Þar á bæ  virðast menn aðeins að vakna  til vitundar um að til er annars konar tónlist en dægurtónlist því fyrr um daginn (30.01.2011) var sýndur erlendur  þáttur með efni úr óperum frá  2010. Gott mál.  Handboltalega séð …  varnarlega sterkir.  (Handboltaþáttur  …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 517

Hinum berfættu í Afríku vantar ekki háhælaða skó. (blog.is 29.01.2011). Þágufallssýkin er þrálát.  Fagmennska  björgunarsveitarmanna, sem  fundu Þjóðverjann á  Eyjafjallajökli , vekur aðdáun. Þar var svo sannarlega vel að verki staðið. Vaskir menn og vel útbúnir. Mikil þjálfun og  góður  búnaður voru forsenda þessa góða árangurs. Þetta minnir okkur á að standa þétt við bakið á  björgunarsveitunum, þegar …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 516

Úr mbl.is ( 28.01.2011): Innanríkisráðherra Egyptalands varar við að „markvissum aðgerðum“ verði beitt á mótmælum, sem fyrirhuguð eru eftir föstudagsbænir í dag.  Að beita aðgerðum á mótmælum er ekki gott orðalag. betra væri gegn mótmælum,  eða  gegn mótmælendum sem hefðu sig í frammi….    Ríkissjónvarpið  bauð okkur  viðskiptavinum sínum  að  horfa á tvær kvikmyndir í …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 515

 Alþingi hefur nú kjörið  Ríkisútvarpinu nýja fimm manna stjórn til fjögurra ára. Allt  eru það valinkunnir  einstaklingar,sem örugglega  hafa  víðtæka  þekkingu reynslu af öllu sem snertir  útvarp og   sjónvarp. Annars hefðu þau varla  verið kosin. Eða hvað?    Á fréttavef Ríkisútvarpsins segir í fyrirsögn (25.01.2011): Aldrei  fleiri fengið  bók í gjöf.  Molaskrifari hefði orðað þetta á  annan …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 514

Morgunblaðið fetar dyggilega í fótspor gamla  kommúnistablaðsins, Þjóðviljans. Minnisstætt er að Þjóðviljinn leitaðist jafnan við að birta sem verstar og hallærislegastar myndir af  pólitískum andstæðingum sínum. Einkum Bjarna Benediktssyni og  í nokkrum mæli Jóhanni Hafstein. Nú leikur Moggi þennan  sama leik gagnvart  Jóhönnu Sigurðardóttur. Svona gera  pólitískir sneplar, ekki alvöru dagblöð.   Athygli vekur (27.01.2011) að …

Lesa meira »

Older posts «

» Newer posts