Úr mbl.is (05.102010) Rétt áður en mótmælunum lauk reyndu tveir ungir menn að bera garðbekk á bálkest sem slökkt hafði verið í á Austurvöll en gáfust upp á miðri leið. Ögn betra hefði verið að skrifa: Rétt áður en mótmælunum lauk reyndu tveir ungir menn að bera garðbekk á bálköst,sem slökkt hafði verið í á …
Molar um málfar og miðla 423
Molaskrifari hélt, að sér hefði misheyrst, þegar fréttamaður Ríkissjónvarps (04.10.2010) spurði forsætisráðherra hvort hún vildi ekki stíga fram á svalir Alþingishússins og ávarpa mannfjöldann á Austurvelli? Fréttamaður hefði alveg eins getað sagt: Má ekki bjóða þér út á svalirnar svo þú geti fengið golfkúlur og grjót í hausinn, – svona í tilefni dagsins ? Þetta var út úr …
Molar um málfar og miðla 422
Þið eruð opnir til klukkan hvað? Svona spurði þáttastjórnandi í Útvarpi Sögu (02.10.2010). Ansi eru þeir margir,sem ekki ráða við sögnina að opna. Þessi þáttastjórnandi er illa haldinn af þágufallssýki, slettir ensku í tíma og ótíma (myndin á að vera svona memo!).Mesti bögubósi. Annars er makalaust að hlusta á útvarpsþátt þar sem átölulaust er hvatt til …
Molar um málfar og miðla 421
Ríkissjónvarpið féll á prófinu í gærkveldi (02.10.2010). Hinn nýi skemmtiþáttur, Hringekjan, stóð ekki undir væntingum.Svo ófyndinn, sem mest má verða. Hversvegna var verið að þvælast til Vestmannaeyja? Meira en lítið klént. Það kemur ekkert í staðinn fyrir Spaugstofuna. Þingheimur hefur nýlokið við að ganga inn í Dómkirkjuna, sagði fréttamaður Ríkissjónvarps (011.10.2010). Nýlokið við að ganga inn …
Molar um málfar og miðla 420
Héðinsfjarðargöngin opna formlega á laugardag, sagði reyndasti fréttaþulur Stöðvar tvö (30.09.2010) Spurt er: Hvað ætla Héðinsfjarðargöngin að opna? Göngin opna hvorki eitt né neitt. Eins og hér hefur senn verið sagt svona þúsund sinnum. Þau verða opnuð. Fréttamaður Stöðvar tvö notaði sama orðalag í framhaldi af þessum inngangi. Með endemum. Sami fréttamaður sagði um jarðgöngin, að …
Molar um málfar og miðla 419
Skrifað er á pressan.is (29.09.2010): …en stöðvarnar höfðu deilt um hvort fyrrnefnda stöðin bæri skylda til þess. Hér hefði átt að segja:… hvort fyrrnefndu stöðinni bæri skylda til þess. Máltilfinning ekki til staðar. Við erum áratug eftir á, sagði fréttamaður Stöðvar tvö (30.09.2010) og átti við, að við værum áratug á eftir þeim, sem um …
Molar um málfar og miðla 418
Þegar farið er í ferðalag er nauðsynlegt að vita hvert á að fara og hvaða leið er skynsamlegast að velja. Á þessu flaskaði Alþingi Íslendinga. Nefndin var undir forystu VG leidd inn á pólitíska hefndarslóð í skjóli úreltra laga, sem segja annað réttlæti gilda fyrir ráðherra en aðra borgara. Skúmaskotapólitík á ekki heima á Alþingi. Orð …
Molar um málfar og miðla 417
Úr dv. is (27.09.2010): …þegar hann ók einu af farartækjum fyrirtækis síns fram af klettabjargi. Að tala um að aka fram af klettabjargi er bull. Rétt hefði verið að tala um að aka fram af klettum, eða að aka fram af bjargbrún. Meira úr dv.is sama dag: Deilur innan forystusveitar uppljóstrunarsíðunnar Wikileaks hefur orðið til …
Molar um málfar og miðla 416
Úttekt Svavars Halldórssonar á hugsanlegum afdrifum landsdómsmála á Alþingi var skýr og vel fram sett í fréttum Ríkissjónvarps (26.09.2010). Sama má segja um samantekt um fyrirhugaða fangelsisbyggingu. Ótrúlegt hvernig það mál hefur velkst í kerfinu árum saman án þess að nokkuð gerðist. Í þriggja línu feitletraðri ,tveggja dálka fyrirsögn í Morgunblaðinu (27.09.2010) segir: Segir samninga …
Molar um málfar og miðla 415
Í fréttatíma Stöðvar tvö (25.09.2010) var sagt: Hann segist viljugur að veita Íslandi ráð…. Betra hefði verið: Hann segist fús til að veita Íslandi ráð. Eða, hann segist reiðubúinn að veita Íslandi ráð. Góðvinur Mola austur í Moskvu sendi eftirfarandi: „Beckham spilaði í 90 mínútur í nótt“ segir visir.is. Hið rétta er auðvitað að hann lék …