Molar um málfar og miðla 433

Markið hefði ekki að telja vegna rangstöðu,var sagt í íþróttafréttum Stöðvar tvö (17.10.2010). Betra hefði verið: Markið var ógilt vegna rangstöðu.  Í sama  fréttatíma var sagt um tiltekinn leikmann: …. lék á öll hljóðfærin og skoraði  tvö mörk. Hverskonar rugl er þetta eiginlega?  Lék á öll hljóðfærin ???  Í fréttatíma Stöðvar tvö (17.10.2010) var sagt …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 431

Gaman var að hlusta  Árna Þórarinsson í Kiljunni (13.10.2010).  Hann er einstaklega vel máli farinn.  Fáðu fleiri slíka til þín, Egill.  Fékk  hún og dóttir hennar… sagði fréttamaður Stöðvar tvö (13.10.2010).  Molaskrifari hefði hér  talið eðlilegra að segja: Fengu hún og  dóttir hennar…  Í sama   fréttatíma var sagt: Í hverju lífeyrissjóðir  mega fjárfesta í..  Þarna  …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 432

 Úr mbl.is (14.10.2010): ….að það þyrfti fyrst og fremst að huga að fólki á aldrinum frá 25 til 40 ára, sem keyptu sér húsnæði á árunum fyrir hrun .  Fólk keyptu sér ekki húsnæði. Fólk keypti sér húsnæði.  Ef sagt hefði verið  – þeim sem keyptu sér húsnæði, væri setningin rétt. Prýiðlegur er  pistill í Lesbók Moggans (16,10.2010)  …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 430

 Stjórnendur Ríkissjónvarpsins  vita að margir  fylgjast með knattspyrnuleikjum í beinni útsendingu. Ekki síst  börn og ungmenni.  Það er  ámælisvert að  Ríkissjónvarpið  skuli  punda  ólöglegum áfengisauglýsingum inn á  heimili landsins  rétt áður en leikurinn hefst, tvisvar sinnum í hálfleik og  svo í leikslok. Þetta segir heldur dapurlega sögu um þessa stofnun í almannaeigu. Svo er spurt: …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 430

    Stjórnendur Ríkissjónvarpsins  vita að margir  fylgjast með knattspyrnuleikjum í beinni útsendingu. Ekki síst  börn og ungmenni.  Það er  ámælisvert að  Ríkissjónvarpið  skuli  punda  ólöglegum áfengisauglýsingum inn á  heimili landsins  rétt áður en leikurinn hefst, tvisvar sinnum í hálfleik og  svo í leikslok. Þetta segir heldur dapurlega sögu um þessa stofnun í almannaeigu.    Svo …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 429

 Í  sjónvarpsfréttum Ríkisútvarpsins (08.10.2010) var sagt: Það er enginn bilbugur í ykkur. Málvenja  er að segja,  að ekki sé  bilbugur á einhverjum. Og er sannarlega engin ástæða til að breyta því. Bilbugur er „sveigja  (á fylkingu), undanhald; undanlátssemi, hik; ótti (í bardaga)“  (Mergur málsins, dr. Jón G. Friðjónsson bls. 63)  Í sama fréttatíma  talaði fréttamaður  …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 428

Í fjögurfréttum  Ríkisútvarpsins (08.10.2010) var talað um að byggja heimili.  Á íslensku  tölum við um að  byggja  hús. Við byggjum ekki heimili.  Fólk stofnar  hinsvegar heimili, þegar það fer að búa.  Við þetta bætist eftirfarandi  frá Molavin: „Heimili Herberts á uppboð“ segir á forsíðu Eyjarinnar og er þar vitnað í DV frétt, sem minnist þó ekkert …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 427

Í áttafréttum Ríkisútvarpsins (09.10.2010) sagði fréttamaður: Þeirra á meðal Barack Obama,sem vann friðarverðlaunin í fyrra.  Ekki kann Molaskrifari að meta þetta orðalag. Barack Obama hlaut friðarverðlaunin í fyrra. Þeim er úthlutað án þess að um þau sé keppt.  Sami fréttamaður  sagði, að ríkisstjórn  Frakklands vonaðist til að eftirlaunamálið í heild sinni hafi verið  ráðið til  …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 426

 Í Morgunblaðinu segir frá því í tveimur nær samhljóða fréttum á  forsíðu og blaðsíðu  fjögur (07.10.2010) að dæmi séu um að fólk á efri árum  taki sparifé sitt út úr banka og  geymi  í bankahólfi. Molaskrifari nefnir, að þetta er fólkið sem  fjölmiðlar kalla  stundum  fjármagnseigendur í  afar  neikvæðu samhengi.  Í Útvarpi Sögu þennan sama  dag …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 425

Lánið fellur á gjalddaga , sagði íþróttafréttamaður Stöðvar tvö (06.10.2010). Lán falla ekki á gjalddaga, heldur falla  lán í gjalddaga, ef   þau eru ekki greidd á réttum  tíma. Eindagi  er gjalddagi, síðasti dagur sem unnt er að greiða skuld án þess að á hana falli dráttarvextir eða annar kostnaður.  Vinsamleg ábending  til Kastljóss: Umræður um …

Lesa meira »

Older posts «

» Newer posts