Ágætlega var að orði komist í fréttum Ríkisútvarpsins (16.07.2010) er sagt var frá nýjum lögum um banka og fjármálastofnanir í Bandaríkjunum. Sagt var að frumvarpið mundi valda straumhvörfum og verða vatn á myllu efnahagslífsins. Fleira var vel sagt í þessari frétt. Molaskrifari grunar fréttastofu ríkisins og mbl.is ( 15.07.2010) um að hafa búið til nýja …
Molar um málfar og miðla 353
Leiðbeiningar og ábendingar Umferðarstofu, Vegagerðar og Landsbjargar til ökumanna og ferðalanga, sem sýndar eru sjónvarpi ,eru prýðilega gerðar. Gott og þarft efni,sem ætti að sýna sem oftast, því ekki veitir af. Hún hefði haft gott af sjá þetta stúlkan sem var að reyna að komast inn á Hafnarfjarðarveginn af Vífilsstaðavegi í dag (15.07.2010). Hún var …
Molar um málfar og miðla 352
Loksins, loksins , eins og einu sinni var sagt. Loksins er farið að fjalla opinberlega um lögbrot Ríkisútvarpsins, – birtingu áfengisauglýsinga. Að þessu hefur margsinnis verið vikið í Molum. Samtök foreldra gegn áfengisauglýsingum, eiga þakkir skildar fyrir sinn þátt í vekja athygli á þessari ósvinnu. Sömuleiðis gott hjá Morgunblaðinu að taka þetta upp. Hlutur …
Molar um málfar og miðla 351
Pistlar Sveins Helgasonar frá Bandaríkjunum eru ævinlega góð innlegg í fréttatíma Ríkisútvarps/sjónvarps. Í pistli í dag (09.07.2010) talaði Sveinn um að vera á höttunum eftir og bjóða gull og græna skóga. Gott mál. Í Molum um málfar og miðla (348), var minnst á forsetningar með íslenskum staðaheitum. Í fréttum Ríkissjónvarps (09.07.2010) var sagt á …
Molar um málfar og miðla 350
Ekki er að sjá að nein önnur norræn sjónvarpsstöð hafi notað tvær og hálfa klukkustund á laugardagskvöldi, á besta tíma, undir boltaleik og fótboltafjas eins og sjónvarp ríkisins á Íslandi gerði (10.07.2010). Samt gátu snillingarnir ekki haldið sig innan tímaramma dagskrár. Á hinum Norðurlöndunum hafa sjónvarpsstöðvarnar víðari sjóndeildarhring. Þar hafa menn heldur ekki auglýsingadeildir sem stjórna dagskránni og íþróttadeildirnar …
Molar um málfar og miðla 349
Málfar í næturfréttum Ríkisútvarpsins frá miðnætti til morguns hefur yfirleitt verið til fyrirmyndar , og gildir það einnig um fréttir Stefáns Svavarssonar ,sem nú annast þetta verkefni. Í morgun (08.07.2010) hefði þó verið betra ef hann hefði talað um bakkafullar ár á flóðasvæðum í Mexíkó. Ekki barmafullar ár. Bikar getur verið barmafullur, en ár tæplega. Nokkrir málfarshnökrar …
Molar um málfar og miðla 348
Glöggur lesandi, benti Molaskrifara á eftirfarandi setningu ( Pressan.is 07.07.2010): Dagur B. Eggertsson formaður borgarráðs tók meðfylgjandi mynd af vinnuvélum,sem fjarlægðu kerið á leið til dagmömmu í dag. Skyldu vinnuvélarnar hafa streist á móti þegar Dagur tók af þeim myndina? Voru vinnuvélarnar lengi á leiðinni til dagmömmu? Þetta hefði að sjálfsögðu átt á koma fram í …
Skýlaust lögbrot Ríkisútvarpsins
Sá sem þetta skrifar hefur oft gert athugasemdir við það hvernig Ríkissjónvarpið hvetur til bjórdrykkju, – auglýsir ölþamb þrátt fyrir að gildandi landslög banni áfengisauglýsingar. Ríkisútvarpið hefur skýlt sér á bak við það að birta orðið léttöl örsmáu letri neðst í hægra skjáhorni í svo sem eina sekúndu í lok bjórauglýsinga. Allir vita að ekki er …
Molar um málfar og miðla 347
Úr dv. is (05.07.2010) : „Fyrir mína parta er ég hér að mótmæla afskiptum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að ríkiskassanum,“ segir Birgitta (Jónsdóttir). Sumum þingmönnum er annað betur gefið en að vanda málfar sitt. Hér ruglar þingmaðurinn saman forsetningunum að og af,sem orðið er ótrúlega algengt. Málfarsráðunautur Ríkisútvarpsins skrifar grein í Fréttablaðið (07.07.2010) og segir þar meðal annars: „Raunar …
Molar um málfar og miðla 346
Hún sigraði Júróvisjónkeppnina, sagði umsjónarmaður poppþáttarins, sem sjónvarp ríkisins býður okkur upp á á laugardagskvöldum. Sigraði keppnina. Það var og. Á vef Ríkisútvarpsins (03.07.2010) stendur:… og fyrsta skóflustungan af nýju gróðurhúsi var tekin. Hér er ruglað saman forsetningunum að og af. Ekki er tekin skóflustunga af nýju gróðurhúsi, heldur að nýju gróðurhúsi. Árni …