Mörg gullkornin hafa hrotið af vörum íþróttafréttamanna og þeirra sem lýsa gangi knattspyrnuleikja að undanförnu. Vinur Molaskrifara rifjaði upp í samtali að á dögunum hefði einum þeirra,sem lýsa leikjum orðið það á að segja: Hann mundaði hægri fót og .…. Stundum eru menn bráðskemmtilegir, – alveg óviljandi. Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins (03.07.2010) var sagt, að þyrla …
Molar um málfar og miðla 344
Úr mbl.is (01.07.2010): Líkt og fram hefur komið er hvöss lægð yfir landinu nú og má búast við hvössum vindi víða á landinu í dag. Molaskrifaði minnist þess ekki að hafa áður heyrt talað um hvassar lægðir. Málvenja er að tala um djúpar lægðir, eða krappar lægðir í fréttum af veðri og vindum. Úr Fréttablaðinu …
Molar um málfar og miðla 343
Í íþróttafréttum Ríkisútvarpsins (30.06.2010) var sagt: … ákvað að við svo búið mætti ekki sitja. Molaskrifari er vanur því að sagt sé, að við svo búið megi ekki standa, þ.e. að það ástand sem ríki sé óviðunandi. Það er aldrei nein pólitík í fréttamati Morgunblaðsins. Sussu nei ! Undir fyrirsögninni: Samþykktin hörmuð var sagt frá …
Molar um málfar og miðla 342
Fréttir í Útvarpi Sögu fóru hnökralaust af stað (01.07.2010), en þar er reyndur fréttamaður Haukur Hólm við stjórnvölinn. Einhverjum kann ef til vill að finnast sú orðanotkun orka tvímælis að kalla fólk á þrítugsaldri ungmenni eins og gert var í fyrsta fréttatímanum. Það orð finnst Molaskrifara betur eiga við um fólk undir tvítugsaldri. Verið var að …
Molar um málfar og miðla 341
Velunnari Mola sendi eftirfarandi: Myndatexti á Pressunni eftir Mörtu Maríu Jónasdóttur: „Það er hrikalegt að sjá hármissirinn á Naomi Campbell.“ Ekki mikilli ritleikni fyrir að fara á þeim bænum og raunar ekki heldur í þessu dæmi af Pressunni (29.06.2010): Sérstakur saksóknari segir að þeir fyrstu sem embættið ákærði fyrir umboðssvik gefist nú tóm til þess …
Molar um málfar og miðla 340
Úr dv.is (28.06.2010): Gísli Marteinn rekur þessa prófkjörsbaráttur sem hann háði í Reykjavík á bloggi sínu á Eyjunni …. Orðið barátta er ekki til í fleirtölu í íslensku. Hér er það blaðamaður DV sem barnar söguna, því Gísli Marteinn notar orðið barátta ekki í fleirtölu í blogginu,sem dv.is vísar til. Glöggur lesandi sendi Molum eftirfarandi: …
Molar um málfar og miðla 339
Á laugardaginn var (26.06.2010) lenti Sjálfstæðisflokkurinn í alvarlegu umferðarslysi fyrir ótrúlegan klaufaskap. Það er hárrétt, að hann hefur nú sest á bekk með örfáum öfgaflokkum yst til hægri. Verði honum og forystu hans að góðu. Dapurleg örlög flokks, sem eitt sinn var í fararbroddi þeirra sem vildu starfa sem nánast með vestrænum lýðræðisríkjum. Nú er flokkurinn stjórnlaust …
Molar um málfar og miðla 338
Úr knattspyrnulýsingu Ríkissjónvarpsins (26.06.2010): … fengu Suður Kóreumenn aðra sókn og hún lauk… Þetta dæmi er kannski ekki það versta, þótt slæmt sé. Í gær sýndi Ríkissjónvarpið fótbolta og kappakstur frá morgni til kvölds, nánast linnulaust. Dagskrá seinkaði um hálftíma vegna framlengingar leiks Bandaríkjanna og Ghana. Samt var hálftíma fótboltafroðusnakk að leik loknum látið halda …
Molar um málfar og miðla 337
Í frumvarpi sem Siv Friðleifsdóttir hefur lagt fram á Alþingi er lagt til að tekin verði upp þingsköp af norskri fyrirmynd.(mbl.is 25.06.2010). Hér varð Morgunblaðinu það á að nota ranga forsetningu. Segja ætti … að norskri fyrirmynd ekki af. Þessi tillaga Sivjar er raunar eitt það skynsamlegasta,sem lengi hefur komið fram á Alþingi. Molaskrifari hefur …
Molar um málfar og miðla 336
Glöggur Molalesandi sendi eftirfarandi úr mbl.is (23.06.2010): „Fabio Capello landsliðsþjálfari Englendinga hrósaði leikmönnum sínum fyrir frábæra baráttu og góðum liðsanda þegar liðið lagði Slóvena 1:0, og tryggði sér þar með sæti í 16-liða úrslitum á HM.“ Þakka sendinguna. Fjólurnar blómstra í Hádegismóum. Visir.is (23.06.2010): Stjórn RÚV mun svo hittast á þriðjudaginn og býst Páll við að ráðningin …