Molar um málfar og miðla 335

– Þú telur að þetta hafi ollið skaða ?  Úr frétt mbl.is (23.06.2010). Nú ættu  verkstjórar á  ritstjórn mbl.is að brýna  fyrir blaðamönnum sínum að nota ekki sagnorð, sem þeir kunna ekki með að fara.  Hér hefði átt að standa: Þú telur að þetta hafi valdið skaða ?  Hið aldna og forðum   virðulega Morgunblað  verður nú æ …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 334

 Nú býður  Ríkisrásin íslensku þjóðinni upp á  allt að 8- 10 klukkustundir á dag af  fótbolta og  froðusnakki um  fótbolta. Þjóðin er nauðbeygð til að borga  fyrir skylduáskrift að Ríkisrásinni. Þeir í Efstaleitinu gefa öllum sem ekki eru  forfallnir í fótboltasýki langt nef. Engin önnur Ríkisrás á Norðurlöndunum býður sínu fólki upp á svona lagað. Það …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 333

Í hádegisfréttum Bylgjunnar (19.06.2010) var sagt frá  brúðkaupi sænsku prinsessunnar Viktoríu og hennar tilvonandi eiginmanns.  Í fréttinni var sagt frá  hátíðartónleikum með þessum orðum: Tónleikunum lauk með barnakór… Þetta orðalag  er út í hött. Tónleikunum lauk með söng  barnakórs,  eða með því að barnakór söng.  Sami féttamaður   talaði í sömu frétt um að ganga í …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 332

Sarkozy minntist heróps de Gaulle, sagði í fyrirsögn  á mbl. is (18.06.2010). Heróp er óp stríðsmanna fyrir orrustu, segir í  Íslenskri orðabók. Herhvöt er hinsvegar eggjun eða hvatning til bardaga. Það var einmitt það sem  de Gaulle  gerði er hann  ávarpaði landa sína  frá London fyrir 70 árum; hann hvatti  þá til að  veita Þjóðverjum …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 331

 Hafin er herferð gegn ölvunarakstri og er það vel. Fjölmiðlar herma  að IOGT samtökin standi fyrir herferðinni. IOGT er ensk skammstöfun (International  Order of Good Templars) heitis alþjóðlegrar bindindishreyfingar, sem hafði mikil áhrif á Íslandi á  sínum tíma  en er nú að mestu horfin úr sviðsljósi samtímans líkt og  ungmennafélögin.  Þessi hreyfing   heitir á íslensku   …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 330

Í tíufréttum Ríkisútvarpsins (16.06.2010)sagði fréttaþulur okkur  frá  knattspyrnukappleik milli  Suður Kóreu og Úrúgvæ. Þegar  fram í fréttina kom var leikurinn hinsvegar milli Suður Afríku og Úrúgvæ ( sem var hið rétta). Enn  eitt  dæmið um þann vonda sið  sumra  fréttamanna  að hlusta ekki á  það sem þeir  lesa, heldur  lesa vélrænt, – eins og vélmenni. …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 329

Gleðilega hátíð !  Í heilsíðuauglýsingu í Morgunblaðinu (17.06.2010) um dagskrá þjóðhátíðardagsins í höfuðborginni segir að milli klukkan 13 00 og  16 00   sé Hópakstur Krúsers og síðan sýning. Krúserbandið leikur. Hefði Jón Sigurðsson  skilið þetta?  Áreiðanlega ekki.  Hér  hafa menn tekið   enska orðið  cruiser og , skrifað það eftir framburði og   nota það um stóra bandaríska …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 328

Hennar hugur virðist hins vegar enn vera hjá Reykjavíkurborg og því myndi hún ekki gefa kost á sér.(mbl.is.13.06.2010). þessi setning er ekki í lagi.  Verið var að  fjalla um hvort Hanna Birna ,senn fyrrverandi  borgarstjóri, mundi gefa kost á sér í embætti varaformanns Sjálfstæðisflokksins á landsfundinum undir lok þessa mánaðar. Fyrri hluti setningarinnar er  getgáta blaðamanns, …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 327

Boðað til mótmæla vegna ráðningu bæjarstjóra í Hafnarfirði, segir í fyrirsögn  (visir.is 11.06.2010). Þetta á auðvitað vera ráðningar, ekki ráðningu. Besti sigraði umræðuna, segir í fyrirsögn á mbl.is (14.06.2010)og  er þar verið fjalla um hlut Besta flokksins í fjölmiðlaumræðu fyrir kosningar.  Málfar íþróttafréttamennsku ræður nú ríkjum á ritstjórninni.   Ungur og ölvaður karlmaður braust inn í …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 326

Það þarf að taka ýmsa í Efstaleitinu í tíma í beygingarfræði tungunnar og það þótt margir  þar séu prýðilega máli farnir. Fréttaþulur í hádegisfréttum (11.06.2010)  las: Þeir prestar ,sem andvígir eru lögunum er þó heimilt að neita að gifta samkynhneigða. Hann hefði auðvitað átt að segja: Þeim prestum, sem…. Það er alltof algengt, að þegar …

Lesa meira »

Older posts «

» Newer posts