Molar um málfar og miðla 325

Úr mbl.is (10.09.2010):  Jón Gunnarsson, Bjarni Benediktsson og Unnur Brá Konráðsdóttir kváðu sér einnig hljóðs .. Hér er ruglað saman sögnunum að kveða og kveðja. Að kveðja sér hljóðs  er að biðja um orðið eða taka til máls. Kveðja, kvaddi, kvöddum kvatt. Þau kvöddu sér  hljóðs. Ræður þeirra kváðu  (ku) hafa verið arfaslakar,  voru sagðar …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 324

Úr  mbl.is (09.06.2010): …vegna kostnaðar sem félagið hafði lagt í vegna markaðssetningar sem nýttist ekki vegna úthlutun á sérleyfisakstri á Vestfjörðum árið 1997.  Hér ætti auðvitað að standa : .. vegna úthlutunar. Ekki vegna úthlutun, sem er  ambaga. Meira úr  mbl.is (09.062010): Um er að ræða upplýsingar í dag, ekki gögn frá fyrri tíma.Ekki verður  sagt,að …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 323

Það er ennþá 2007 hjá Orkuveitu  Reykjavíkur, þegar  þetta fyrirtæki í almannaeigu  kaupir  átta milljón króna Benz handa fjármálastjórann, að sögn DV (09.06.2010).  Þeir voru kannski aðeins of  fljótir á sér.  Í dag (09.06.2010) auglýsir Bílabúð  Benna  14 milljón króna Porsche jeppa.   Sá  bíll  hefði örugglega farið þessum embættismanni vel. Maður verður að komast fljótt  og greiðlega …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 322

Úr dv.is (07.06.2010): Hún segist ekki hafa mætt andstöðu innan flokksins eftir úrslit kosninganna en flokkurinn hlaut afhroð í kosningunum og náði aðeins einum borgarfulltrúa inn. Á íslensku er talað um að gjalda afhroð eða bíða afhroð, bíða herfilegan ósigur,  ekki hljóta afhroð. Dv.is  fær engu breytt um það. Meir úr dv.is þennan sama dag:Meira …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 321

Lengi morguns (07.06.2010) mátti lesa eftirfarandi fyrirsögn á visir.is : Dauði vegna vímuefnaefnaneyslu óvenju há fyrstu fjóra mánuðina. Sá sem samdi þessa fyrirsögn ætti að leita sér að annarri vinnu. En þeim er ekki alls varnað á visir.is. Seinna var fyrirsögnin leiðrétt: Dánartíðni vegna vímuefnaneyslu óvenju há fyrstu fjóra mánuðina. Bjarni Sigtryggsson, Molavin, gaukaði  eftirfarandi …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 320

Í fróðlegu og fínu Sjómannadagsblaði Morgunblaðsins (05.06.2010) segir í auglýsingu: Starfsfólk Naust Marine  senda sínar bestu kveðjur  til  allra sjómanna…. Starfsmenn senda kveðjur, en starfsfólk sendir kveðjur.  Þegar Ríkisútvarpið segir okkur (06.06.2010), að eldur hafi logað á 400 metra löngu svæði  í Heiðmörk, erum við ákaflega litlu nær. Svo er líka  svolítið einkennilegt að heyra  …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 319

Í íþróttafréttum Stöðvar tvö (03.06.2010) var sagt um  mann, að hann yrði ávallt í minningum stuðningsmanna Liverpool. Ankannalega að orði komist um það, að maðurinn verði stuðningsmönnum Liverpool eftirminnilegur. Í íþróttafréttum Stöðvar  kvöldið eftir sagði fréttamaður: Stjarnan sigraði leikinn. Mistur af þessu tagi verða líklega  viðvarandi vandamál í allt sumar, sagði fréttaþulur í fréttayfirliti Stöðvar tvö …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 318

 Nýlega heyrði Molaskrifari á einhverri útvarpsstöðinni, að  talað  var  um að binda  ekki skóþvengi sína eins og  aðrir menn. Molaskrifari er á því að þetta sé mesta rugl. Í ágætri bók dr. Jóns G. Friðjónssonar, Merg  málsins, segir um skóþveng/skóþvengi : Binda  skóþvengi sína,  er að tygja sig til brottfarar. Binda ekki skóþvengi sína /skóþveng sinn …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 317

Fréttaþulur Stöðvar tvö las óhikað (31.05.2010) Landsmót hestamanna,…. hefur verið aflýst. Hér átti auðvitað að segja  að Landsmóti hestamanna hefði verið af lýst. En þetta var ekki eina beygingarvillan í þessum fréttatíma Stöðvar tvö. Þar var líka sagt: .. um er að ræða .. ( þrjá seðlabankastjóra) ..auk Jónas Fr. Jónsson.  Hér hefði  átt að segja:.. …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 316

 Bóndi vestan af fjörðum hafði samband við Molaskrifara og vakti athygli á að í stjórnmálaumræðum  í Síðdegisútvarpi RÚV  Rásar tvö,(28.05.2010) hefði verið  talað um Hönnu Birnu borgarstjóra sem helsta vonarpening Sjálfstæðisflokksins og  Dag B.  Eggertsson,sem helsta  vonarpening  Samfylkingarinnar. Þetta var sagt í þeirri merkingu, að þau væru  leiðtogaefni flokka sinna. Það er greinilegt, sagði þessi …

Lesa meira »

Older posts «

» Newer posts