Það er sumum fjölmiðlamönnum erfitt að segja rétt frá opnun kjörstaða. Annar umsjónarmanna Kosningakastljóss (28.05.2010) sagði okkur að kjörstaðir opnuðu. Lét þess hinsvegar alveg ógetið hvað kjörstaðir mundu opna. Í morgunfréttum RÚV kl 07 00 daginn eftir var hinsvegar rétt með farið og sagt að kjörstaðir yrðu opnaðir. Ef fréttamenn RÚV gerðu sér það ómak að …
Molar um málfar og miðla 314
Það setur óhug að Molaskrifara við að hlusta á fréttir af vaxandi spennu á Kóreuskaga. Eftir að hafa heimsótt Norður Kóreu tvisvar og lesið sér sæmilega til um þróun mála þar, veit hann að þeir norðanmenn eru til alls vísir. Við hverju er að búast af landi þar sem farsíminn er tekinn af þér við …
Molar um málfar og miðla 313
Kvölddagskrá Ríkissjónvarpsins (25.05.2010) var svo sannarlega sniðin að þörfum þeirra sem mest af öllu þrá Evróvisjón og fótbolta. Klukkan 19:00 Evróvisjón Klukkan 21:10 Evróvisjón 22:00 Tíufréttir og veður 22:15 Breskur myndaflokkur 23:05 Fótboklti 23:50 Fótbolti 00:20 Evróvisjón, endursýning frá því fyrr um kvöldið. Það vantar ekki menningarlegan metnað í Efstaleitið. Öðru nær! Sjónvarpsmenn eiga einkar …
Molar um málfar og miðla 312
Ekki heyrði Molaskrifari betur en í veðurfregnum að morgni dags (22.05.2010) væri talað um norðnorðaustan logn í Reykjavík! Það er mikil blíða. En kannski var Molaskrifari bara milli svefns og vöku og heyrði eitthvað,sem aðrir ekki heyrðu! Molaskrifara misheyrðist ekki. Sama orðalag var notað, tvívegis, í veðurfréttum að morgni Hvítasunnudags (23.05.2010). Þá var talað um …
Molar um málfar og miðla 311
Gleðilega hátíð ! Talsverðar líkur eru á að Landsmót hestamanna verði frestað, sagði þulur í tíufréttum Ríkissjónvarps (20.05.2010). Þarna átti orðið landsmót að vera í þágufalli. Einhverju er frestað. Eitthvað er ekki frestað. Í sömu frétt var sagt: Allar keppnir hafa verið slegnar af ! Í þessum fréttatíma var einnig sagt: … síðan í gærnótt. Slíkt …
Hver segir ósatt um Wikileaks ?
Við höfum fengið þrjú mismunandi svör við spurningunni um hver greiddi kostnaðinn við ferð Kristins Hrafnssonar fréttamanns til Bagdad í Írak, fyrr á þessu ári. 1. Birgitta Jónsdóttir,alþingismaður, segir að Wikileaks hafi greitt kostnaðinn við ferðina. Ríkisútvarpið hafi ekki þurft að borga neitt. Þetta sagði hún á Bylgjunni 11. apríl. 2. Kristinn Hrafnsson, fréttamaður, sagði í …
Molar um málfar og miðla 310
Það voru aðstandendur lekavefsins Wikileaks, sem greiddu ferðakostnað Kristins Hrafnssonar fréttamanns Ríkissjónvarpsins til Bagdad í Írak í vor. Frá þessu greindi Birgitta Jónsdóttir Alþingismaður í útvarpsþætti Sigurjóns M. Egilssonar Á Sprengisandi á Bylgjunni sunnudaginn 11. apríl síðastliðinn. Orðrétt sagði Birgitta: Þannig að það sé skýrt ,að það var Wikileaks, sem greiddi fyrir ferðina út, en ekki Ríkisútvarpið. …
Molar um málfar og miðla 309
Í fréttayfirliti hádegisútvarps RÚV (19.05.2010) klukkan tólf var sagt: Skipverji á sex tonna trillu var bjargað…Skipverji var ekki bjargað, – skipverja var bjargað. Úr sjónvarpsauglýsingu (19.05.2010): Þú vinnur námskeiðið þegar þér hentar. Verið var að auglýsa fjarnám. Eðlilegt hefði verið að segja : Þú vinnur úr námsefninu, þegar þér hentar. Í fyrirsögn á pressan.is (19.05.2010) segir: Jennifer …
Molar um málfar og miðla 308
Úr dv.is (18.05.2010): Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, segir að ræða sem hann flutti á Alþingi í dag hafi verið snúið á hvolf af fjölmiðlum. Þetta er ömurlegt orðalag. Betra væri: Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, segir fjölmiðla hafa snúið ræðu sem hann flutti á Alþingi á hvolf. Í fréttum Stöðvar tvö (18.05.2010) af hollenska bátnum á …
Einstæð lágkúra
Þegar Jón Magnússon fyrrverandi þingmaður tveggja flokka, Sjálfstæðisflokksins og Frjálslynda flokksins og hæstaréttarlögmaður að auki, segir að Dagur B. Eggertsson sé sálufélagi Adolfs Hitlers, þá rekur mann í rogastans. Þegar svo Ólafur Arnarson,hagfræðingur, sem virðist í fullu starfi við að verja bankabófana, kallar Ólaf Þór Hauksson sérstakan saksóknara, Óla SS, þá rekur mann aftur …