„Kjörstaðir loka klukkan tíu,“ var sagt hvað eftir annað (24.04.) í sjónvarpi ríkisins,RÚV, í gærkveldi og í morgun var talað um að kjörstaðir opnuðu. Kjörstaðir loka auðvitað ekki neinu og opna ekki neitt. Kjörstaðir voru opnaðir klukkan níu eða tíu að morgni kjördags. Þá hófst kjörfundur. Kjörstöðum var lokað klukkan tíu að kveldi kjördags. Þá …
Hræðslusprengja Framsóknar – Þráinn stríðir þjóðinni
Það var svolítið sérkennilegt hvernig Framsóknarformaðurinn varpaði órökstuddri hræðslusprengju inn í umræðurnar í gær og tókst þannig að láta umræðuna snúast talsvert um sig daginn fyrir kosningar. Þetta var greinilega gert í örvæntingu,en ekki held ég að það hafi skilað miklum árangri. Þetta mál snýst ekki um að leyna almenning einhverju sem skiptir máli. …
Molar um málfar LX
Alkunna er að orð hafa stundum gjörólíka merkingu í eintölu og fleirtölu. Bjarni Sigtryggsson, áhugamaður um móðurmálið, sendi Molum eftirfarandi: „Íslendingar eru átakaþjóð og vinna oft þrekvirki í skorpum. En fleirtölumynd þessa orðs hefur aðra merkingu og því brá mér er ég heyrði í upphafi þáttarins Samfélagið í nærmynd á Rás 1 á mánudag komist svo …
Molar um málfar LIX
Sífellt er verið að rugla orðatiltækjum saman eða fara rangt með orðasambönd, sem eru föst í málinu. Hér eru tvö dæmi (21.04.) af bloggsíðum afkastabloggara á Moggabloggi. „ Í þetta sinn spyrni ég ákveðnum framboðum saman .“ Það er endaleysa að tala um að spyrna einhverju saman. Sé þetta innsláttarvilla og skrifari hafi ætlað að …
Molar um málfar LVIII
Enn halda menn áfram að „sigra keppni“ í íþróttafréttum fjölmiðla. Þannig var til orða tekið í Rúv sjónvarpi (19.04.) að „Everton hefði sigrað vítaspyrnukeppni“. Knattspyrnulið sigrar í vítaspyrnukeppni eða vinnur keppnina. Þannig heyrði ég þetta, allavega. Ekki vil ég þó með öllu útiloka að mér hafi misheyrst. Sá sem þetta las er nefnilega ekki einn …
Steypustöð Sjálfstæðisflokksins
Íslenskt slanguryrði yfir algert rugl er steypa. Þegar sagt er að eitthvað sé alger steypa þá er það sem sé tóm vitleysa eða tóm tjara svo notað sé annað orðatiltæki. Þegar leiðtogar Sjálfstæðisflokksins tala um að ESB sé að blanda sér í kosningabaráttuna á Íslandi og sendiherra ESB á Íslandi með búsetu í Noregi sýni Íslendingum dólgslega …
Molar um málfar LVII
Reyni Traustasyni,ritstjóra, þakka ég athugasemdir við Mola gærdagsins. Þið á Vefdv verðið að vanda ykkur meira. Skoðum eftirfarandi skrif (19.04.): „Strandhelgisgæslan í Bandaríkjunum leitar nú að 39 ára gömlum karlmanni sem féll útbyrðis af norsku skemmtiferðaskipi undan ströndum Bahamas –eyja. Atvikið átti sér stað snemma morguns á laugardaginn. Ekki hefur tekist að bera kennsl á manninn …
Molar um málfar LVI
Á Vefdv mátti lesa (17.04.) eftirfarandi: „Vegna þess að meirihluti stjórnmálaflokkanna vildu ekki þiggja 10 mínútna gjaldfrjálsan útsendingartíma hjá Ríkissjónvarpinu hefur RÚV ákveðið að hætta við að útdeila öðrum minni framboðum þann tíma.“ Við þessa einu setningu er tvennt að athuga. Í fyrsta lagi ætti að skrifa „..meirihluti stjórnmálaflokkanna vildi ekki…“. Í öðru lagi eru …
Molar um málfar LV
Í myndatexta á forsíðu Moggans (17.04) segir:„Á annað þúsund rúmmetrar af fyllingarefni fara í Landeyjahöfn á Bakkafjöru“. Þessi setning var svo lesin athugasemdalaust í morgunútvarpi Rásar tvö þegar stiklað var á efni dagblaðanna. Molahöfundur er ekki verkfróður, en sá þó í hendi sér, að hér var eitthvað málum blandið. Ef tíu námutrukkar flytja grjót í …
Molar um málfar LIV
Merkilegt er að heyra þingmenn (15.04.) tala um „þrjár kosningar“, þegar segja ætti þrennar kosningar. Það eru ekki mörg ár síðan núverandi forseti Íslands talaði um „tvö verðlaun“ í áramótaávarpi til þjóðarinnar.Hann hefði átt að segja tvenn verðlaun. . Á lokadegi þingsins (17.04) sagði þingmaður: „Vonandi ber okkur gæfa til þess að samþykkja þetta frumvarp.“ …