Einkennilega var tekið til orða í frétt á Vefvísi (15.04):„einhverjir mótmælendurnir grýttu grjóti í lögreglumenn á meðan að aðgerðir þeirra stóðu yfir.“ Að grýta grjóti er tugguorðalag. Eðlilegra hefði verið að segja: Einhverjir úr hópi mótmælenda grýttu lögregluna meðan á aðgerðunum stóð. Eða einhverjir úr hópi mótmælenda köstuðu grjóti í lögregluna.. Nú er mikið um …
Molar um málfar LII
Tvö eru þau orð,sem margir fjölmiðlamenn hafa sérstakt dálæti á. Þar hef ég í huga orðin áhafnarmeðlimur og aðili. Þegar verið er að ræða um skipverja er oftast talað um áhafnarmeðlimi, en það orð er óttalegur óskapnaður. Þegar Geysir fórst á Vatnajökli tókst svo giftusamlega til að öll áhöfnin bjargaðist. Tveir skipverjar úr áhöfn togarans …
Molar um málfar LI
Sumir segja að gera eigi minni kröfur um málfar á bloggsíðum en á öðrum opinberum vettvangi. Þessu er Molahöfundur ósammála. Bloggarar eiga að vanda málfar sitt. Gott málfar hefur góð áhrif á þá sem lesa. Á sama hátt smitar vont málfar út frá sér eins og hver önnur pest. Í morgun (13.04.) las ég eftirfarandi á …
Molar um málfar L
Á Páskadag var frumfluttur sálmur í þýðingu doktors Sigurbjörns Einarssonar biskups (ekki doktor Sigurbjarnar eins og sagt var í RÚV). Sálmurinn hefst á orðunum ,,Nú máttu´ ekki, María gráta“. Í vefmogga var úrfellingarmerkið birt eins og rétt er. Á heimasíðu RÚV var heiti sálmsins þannig ritað:, Nú máttu ekki María Gráta“ Allir þar á bæ sem tóku …
Molar um málfar IL
Nokkuð algengt er að heyra orðalag eins og lesið var í hádegisfréttum RÚV (09.08): ,,Forysta Sjálfstæðisflokksins segist ekki hafa verið kunnugt um…“ Betra hefði verið að segja: ,,Forystumenn Sjálfstæðisflokksins segja, að þeim hafi ekki verið kunnugt um…“ Á vefdv gengur laus skriffinnur sem gerir engan mun á forsetningunum af og að. Hann skrifar (12.04):,,Leit af henni er því …
Molar um málfar XLVIII
Æviminningar alþýðumanna frá fyrri tíð eru nær undantekningarlaust góður lestur . Margir nutu þeir lítillar sem engrar skólagöngu, en skrifa samt frábæran texta. Í dymbilviku hef ég verið að lesa ,,Kaldur á köflum“, endurminningar Eyjólfs frá Dröngum. Sú bók kom fyrst út haustið 1953, en seldist fljótt upp og var gefin út að nýju 1965. …
Molar um málfar XLVII
Í hádegisfréttum RÚV á föstudaginn langa var sagt því að flytja ætti stytta útgáfu Jóhannesarpassíu Bachs í einni af kirkjum Reykjavíkur. Í fréttinni var sagt, að þetta væri í fyrsta skipti,sem þessi stytta útgáfa væri flutt í heild sinni. Með öðrum orðum, í fyrsta skipti sem stytta útgáfan væri flutt óstytt. Eitthvað fannst mér bogið …
Molar um málfar XLV
Venjulegt er að talað um brim þegar bárur brotna á ströndum , stórbrim þegar hvasst er og öldurnar háar. Það var þessvegna svolítið skrítið á lesa í Vefmogga (07.04) að brim hefði valdið stórtjóni á grásleppunetum á 30 faðma dýpi. Samkvæmt minni máltilfinningu er brim upp við land ekki úti á sjó. Hvað segja …
Mogginn féll á prófinu – Makalaust fréttamat Moggans
Undir stjórn nýrra eigenda féll Mogginn á fyrsta prófinu. Fréttin um 30 milljóna styrkinn frá FL Group var nánast falin á Netmogga og er eindálkur á vinstri síðu (bls. 6) í prentmogga dagsins. Þrjátíu milljón króna styrkur veittur þremur dögum fyrir gildistöku laga, sem hefðu gert hann lögbrot. Löglegt ,en örugglega siðlaust. Líklegt þykir mér, að fleiri …