Molar um málfar XLIV

 Ríkisútvarpið hefur skyldum að gegna umfram aðra  fjölmiðla. Það er  lögum  samkvæmt og  að auki leggur  skylduáskriftin, nefskatturinn ,  þessari mætu menningarstofnun   alveg sérstakar skyldur á herðar. Það er misbrestur á því hjá RÚV , að fólk sé sett til þeirra verka, sem það best kann. Góðir tónlistarmenn eru til dæmis ekki sjálfkrafa allra manna …

Lesa meira »

Molar um málfar XLIII

Betur fór en á horfðist (04.04.), þegar fiskiskip varð vélarvana skammt frá landi undan Krísuvíkurbjargi. Bæði Vefvísir og Stöð tvö töluðu um að skipið hefði orðið „aflvana“. Ekki kann ég við það orðalag , þótt ekki sé það beinlínis rangt. Á Vefvísi var talað um að búið væri að „koma afli í vél skipsins“. Það …

Lesa meira »

Molar um málfar XLII

Nú er hafin sú tíð, að mikið er um kappakstursmyndir í fréttum og dagskrá sjónvarpsstöðvanna. Þetta efni er algjörlega utan míns áhugasviðs, en mér er ljóst að margir hafa áhuga á þeim kappakstri sem kenndur er við „formúlu“. Það verður hinsvegar að gera þá kröfu til þeirra sem flytja þessar fréttir að þeir tali óbrenglaða …

Lesa meira »

Molar um málfar XLI

  Fyrirtæki heitir  Andersen & Lauth. Heitið á  sér  sjálfsagt sögulegar skýringar. Í heilsíðuauglýsingu í Fréttablaðinu (03.04) stendur  Anderson & Lauth – Established  1934. Af hverju  ekki   stofnað  1934?  Hversvegna  tala ensku  við íslenska lesendur ?  Í  hádegisfréttum (03.04) sagði íþróttafréttamaður RÚV  frá  sænskum knattspyrnuþjálfara,sem  rekinn hafði  verið úr  starfi í Mexíkó. (,,Venjarinn sakkaður“ , hefðu  Færeyingar sagt) …

Lesa meira »

Molar um málfar XL

Enn ein stólpípustofnunin virðist vera að komast á laggirnar og nú í Hvalfirðinum. Heyrði þátt um þessa stofnun í Útvarpi Sögu (02.04). Þátturinn var raunar svo samfelld lofrolla að hann hlýtur að hafa verið keypt auglýsing. Enn koma við sögu pólskir doktorar sem hafa þá köllun að innanhreinsa iður Íslendinga. Eru þeir sagðir hafa flutt …

Lesa meira »

Usli á Alþingi og aðför að Jóhönnu

Mér  hefur alltaf verið heldur hlýtt  til  Sjálfstæðisflokksins, kannski mest  síðan á farsælum  Viðreisnarárunum. Stefna  flokksins í utanríkismálum  fór til dæmis  mjög  saman  við  stefnu okkar  hægri sinnaðra  Alþýðuflokksmanna. Nú held ég  hinsvegar að   þingmenn  flokksins á  Alþingi séu  gjörsamlega  búnir  að ganga  fram  af þjóðinni. Þingreyndir menn hafa örugglega ekki upplifað  ræðuhöld  af því …

Lesa meira »

Molar um málfar XXXIX

Lítill bæklingur kom inn um bréfalúguna í morgun með dagblöðunum. Framan á honum stendur: „Afsláttur sem telur“. Þetta þykir mér ekki til fyrirmyndar. Veit að vísu að reiðareksmenn um málfar hafa sett þessa merkingu í orðabók, en merkja jafnframt sem málnotkun sem ekki sé æskileg. Hér er sögnin að telja látin þýða að eitthvað skipti …

Lesa meira »

Molar um málfdar XXXVIII

 Úr Vefmogga (31.03) ,,Síld hefur vaðið um Hafnarfjarðarhöfn undanfarnar vikur.“  Bara  veður  um höfnina !  Hvíklík ósvífni.  Samkvæmt málvenju ætti  hér  að  segja  : Síld  veður  Í Hafnarfjarðarhöfn. En lesendur Vefmogga  geta andað  rólega því seinna í sömu frétt  segir:,,Ekki er talin sérstök hætta stafa  af síldinni þar sem  straumar inn og út úr höfninni  …

Lesa meira »

Molar um málfar XXXVII

Eitt af því sem  fréttaskrifarar hafa verið að  ruglast á   svo lengi sem ég man, er  heitið á   þeim  svæðum eða  stjórnsýslueiningum  (ekki gott orð!)  sem  mynda  Bandaríki Norður  Ameríku, – ,,The United States of  America“. Það er rétt að  tala um New York  ríki,  Vermont  ríki  o.sv.frv.    Á ensku er  talað ,,The  State of  …

Lesa meira »

Molar um málfar XXXVI

  Það væri verðugt verkefni fyrir nýjan málfarsráðunaut  RÚV  að kenna  ýmsum sem þar koma  að hljóðnema  grundvallatriði beyginga. Það er til dæmis ekki óalgengt að  heyra: „Lagið  var sungið  af Hauk  Morthens“. Mannsnafnið Haukur  beygist: Haukur Hauk,Hauki, Hauks. Svo  finnst mér  að  forðast eigi notkun þolmyndar ,sem   þar sem óhjákvæmilegt er. Germynd er alltaf …

Lesa meira »

Older posts «

» Newer posts