Það var eitthvað óendanlega dapurlegt í fréttum Stöðvar tvö núna í kvöld að hlusta á tvö þúsund fulltrúa á landsfundi Sjálfstæðisflokksins skellihlæja að þeirri fullyrðingu Davíðs Oddssonar að Norðmaðurinn sem tímabundið gegnir starfi seðlabankastjóra hljóti að vera með Alzheimer sjúkdóm á háu stigi. Það fór hrollur um mig við að hlusta á þetta. Ég hugsa …
Molar um málfar XXXIV
,,Enn ein ræktunin upprætt“, er ágæt fyrirsögn á Vefmogga. Frétt í sama miðli um mikil flóð í Norður Dakóta er hinsvegar dapurlegt dæmi um óvenjulega illa skrifaða frétt. Ný sögn hefur verið að ryðja sér til rúms í fjölmiðlum að undanförnu. Það er sögnin ,,að toppa“ í merkingunni að skara fram úr eða vera einhverjum …
Molar um málfar XXXV
Þeir gera það ekki endasleppt, sem bera ábyrgð á fyrirtækinu,sem ber ónefnið ,,Merkja Outlet“ og áður hefur verið vikið lítillega að í þessum dálkum. Í heilsíðuauglýsingu í Fréttablaðinu (27.03) auglýsir þetta fyrirtæki: ,,Bestu verðin“. Orðið verð er eintölu orð. Þarna ætti að standa: ,,Besta verðið“. Stjórnendur þessa fyrirtækis bera ekki mikla virðingu fyrir móðurmálinu. …
Molar um málfar XXXIII
Nýtt orðatiltæki sá ég í Morgunblaðinu í morgun. Þar er verið að bera fram þakkir til starfsfólks í einu af útíbúum SPRON og er sagt að þar,,hafi verið valinn maður á hverjum stað“. Hér er augljóslega um að ræða nútíma afbökun á orðatiltækinu ,,valinn maður í hverju rúmi“. Þar þýðir rúm ekki rekkja, heldur …
Molar um málfar XXXII
Kostuleg villa er á dv.is í dag. Þar segir: ,,Þeir köstuðu peningunum úr bílnum og telur lögregla að vegfarendur hafi séð sæng sína útbreidda og tekið hluta af þýfinu“. Þetta er enn eitt dæmið um það þegar fréttaskrifarar slá um sig með orðatiltækjum ,sem þeir kunna ekki og hafa ekki minnstu hugmynd um hvað þýða. Í fyrsta lagi …
Molar um málfar XXXI
Í sjónvarpsauglýsingu,sem sýnd er á hverju kvöldi um þessar mundir kemur texti á skjáinn þar sem talað er um ,,að leggja eitthvað að mörkum“. Ég hef alla tíð vanist því að sagt sé að leggja eitthvað af mörkum. Fyrri myndin er þó sjálfsagt rétt líka,þótt sjaldnar sé hún notuð. Nú hefur formlega verið gengið …
Molar um málfar XXX
Forsetningin vegna tekur með sér eignarfall. Í RÚV var enn einu sinni sagt í morgun ,,vegna lagningu vegar“. Það er rangt. Hið rétta er að segja vegna lagningar vegar. Hægt er að leggja bæði vegi og hár. Endur fyrir löngu er ég sat á Alþingi man ég að fundum var hætt óvenju snemma tiltekinn …
Molar um málfar XXIX
Í frétt frá svonefndum sláturleyfishöfum, sem eru líklega þeir fulltrúar bændastéttarinnar sem eiga og reka sláturhúsin er talað um ,,matvælalegt sjálfstæði“. Þetta er úr samþykkt , sem er liður því að sannfæra þjóðina um að bændur verði leiddir sem lömb til slátrunar að hausti ef við göngum í Evrópusambandið.,,Matvælalegt sjálfstæði“ er ekki mannamál, heldur bull. Innihaldslaus merkingarleysa. …
Molar um málfar XXVIII
Alþingismönnum, sem öðrum, lætur misvel að tjá sig í rituðu máli. Eftirfarandi las ég á þingmannsbloggi í gærkveldi: ,,Útvaldir gæðingar inni í bönkunum sem stýrt er af pólitísk skipuðum bankaráðum er ætlað það hlutverk að ákveða hverjir fái afskriftir á sínum lánum.“ Hér ætti í fyrsta lagi að standa – Útvöldum gæðingum og svo …
Afeitrun og Bessastaðir
Enn einu sinni tengir athafnakonan Jónína Benediktsdóttir stólpípuverkefni sitt við forsetafrúna og Bessastaði. Það heyrði égí endurteknum útvarpsþætti á Bylgjunni í morgun. Þetta gerði frú Jónína enda þótt forsetaskrifstofa hafi í yfirlýsingu svarið fyrir tengsl forsetafrúarinnar við stólpípurnar. Það ósmekklegasta við þáttinn í morgun var þó að heyra Jónínu Benediktsdóttur herma eftir Dorrit Moussaieff og íslenskum framburði hennar. …