Molar um málfar XXVII

Enn eitt fyrirtækið auglýsir nú undir heitinu „outlet“. Fyrirtækið er til húsa á Fiskislóð Í Reykjavík og selur skó. Það auglýsir: „ Tveir fyrir einn á öllum skóm á tilboði“. Ekki get ég skilið það öðruvísi en ef ég kaupi einn skó þá fái ég tvo. – Hvílík kjarakaup ! ,,Outlet“ sýkin er bráðsmitandi því …

Lesa meira »

Molar um málfar XXVI

Mjög þótti mér einkennilega til orða tekið í fréttum Stöðvar tvö í kvöld. Þar var fyrst sagt:„Gemlingarnir eru farnir að bera sín fyrstu lömb“, og seinna „ Gemlingurinn,sem bar lambið“. Ef um tvílembinga hefði verið að ræða hefði líklega verið sagt: „Gemlingurinn sem bar lömbin“. Mér var kennt að hér ætti að nota þágufall um …

Lesa meira »

Molar um málfar XXV

Þegar ég las um að nú ætti að taka upp „kynjaða hagstjórn“ á Íslandi, vissi ég eiginlega ekki hvaðan á mig stóð veðrið. Það skal fúslega játað að ég skildi þetta ekki. Þegar lengra var lesið komst ég að raun um að þessi svokallaða kynjaða hagstjórn átti að fela í sér að stjórnvaldsaðgerðir fælu ekki …

Lesa meira »

Molar um málfar XXIV

Vefvísir hefur tekið sérstöku ástfóstri við íslenska stúlku sem búsett er í Búlgaríu og birtir oft pistla þar sem orð hennar og gjörðir eru til umfjöllunar. Í dag er sagt frá þátttöku hennar í einhverskonar keppni og fylgja sex myndir af henni og unnustanum. Frásögnin er hrærigrautur af ensku og íslensku. Líklega er stúlkan búin …

Lesa meira »

Byr með betlistaf

 Árið 2008  tapaði Sparisjóðurinn Byr 29 milljörðum króna.  Árið 2007 greiddu ( stofnfjár)eigendur   Sparisjóðsins  Byrs sér  13.5 milljónir króna í arð úr svonefndum varasjóði eins og það var orðað í frétt.  Árið 2006 varð 8 milljarða króna hagnaður  af rekstri Byrs. Árð 2009  vilja stofnfjáreigendur Byrs  að ríkið, íslenskir  skattgreiðendur, rétti þeim 11  milljarða króna. …

Lesa meira »

Molar um málfar XXIII

Í Morgunblaðinu í dag er greint frá Árnamessu þar sem menn „Minntust 95 ára árstíðar Árna Helgasonar í Stykkishólmi“. Hér er sitthvað málum blandið. Í fyrsta lagi er árstíð hluti úr árinu, vetur,sumar vor eða haust. Skrifari ætlaði sennilega að nota orðið ártíð, en það er rangt orð í þessu tilviki. Ártíð er dánarafmæli eða …

Lesa meira »

Molar um málfar XXII

Málblómin spretta vel á Vefvísi, sem er mikil amböguuppspretta. Þar mátti lesa eftirfarandi fyrirsögn í gær:„Opnaði verslun með notuðum barnafötum“. Aldrei hef ég heyrt að tekist hafi að opna eitt eða neitt með notuðum barnafötum. Algengast er líklega að nota lykla þegar verslanir eru opnaðar. En þeim sem samdi þessa fyrirsögn er fyrirmunað að kunna …

Lesa meira »

Molar um málfar XXI

     Í dagskrárkynningu í RÚV  var  sagt að í tilteknum þætti yrði fjallað um  Hays kóðann. Orðabókin mín  segir, að kóði  eða kóti  sé  forritunartexti ritaður á  forritunarmáli. Það sem á  ensku  heitir Hays Code eru   ekki forritunarreglur heldur  umdeildar  siðareglur,  sem  voru í  gildi í bandaríska kvikmyndaiðnaðinum á árunum 1930 til 1968.  Á ensku er …

Lesa meira »

Undanþegnir reglum ?

  Sumir þeirra sem kaupa stærstu og  dýrustu slyddujeppana virðast halda að í kaupunum  fylgi undanþága frá  þeim reglum, sem  aðrir  ökumenn verða  að hlíta.  Þeir halda að þeir megi leggja hvar sem er.  Eigendur  þessara  stórjeppa   notfærðu  sér ekki  bílastæðin við Hagkaup  síðdegis í dag  í  Garðabæ. Þeir  lögðu á gangstéttina  fyrir  framan  dyr  …

Lesa meira »

Molar um málfar XX

Af  Vefvísi í dag:  „….en bætir við að Sniglarnir einbeiti sér núna frekar að 25 ára afmæli samtakanna sem verða haldinn 1. apríl næstkomandi.” Molaskrifara er algjörlega  fyrirmunað að skilja hvernig  svona villa  verður  til. „..  25 ára afmæli sem verða haldinn”. Ljóst er að  sá sem þetta skrifaði   er  betur fallinn til annarra starfa  …

Lesa meira »

Older posts «

» Newer posts