„Þingmenn læra góða siði“, segir í fyrirsögn (13.05.09.) í Vefmogga. Þegar fréttin er lesin kemur í ljós að hún fjallar að meginefni um það að nú hefur verið ákveðið að þingmenn þurfi ekki lengur að vera með hálsbindi á þingfundum. Persónulega finnst mér gott að halda í gamlar hefðir. Er líklega íhaldsmaður í eðli mínu. …
Molar um málfar LXIV
Fréttamenn flaska stundum á því að skýra ekki orð sem eru torskilin eða margræð og viðmælandi þeirrra notar, en líklegt er að margir áheyrendur skilji ekki. Þetta gerðist í fréttum Rúv sjónvarps (10.05.09.), þegar rætt var við nýjan forsætisráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur. Jóhanna sagði eitthvað á þessa leið: „Við þurfum væntanlega að leggja fram bandorm…..“ Ég …
Svolítið síðbúið hrós um grein skálds
Ef ég vildi að margir læsu þessar línur,þá ætti fyrirsögnin að vera í þessa áttina: „Hrós um grein Hannesar.“ Þá væri hún í nútímablaðamennskustíl, – menn héldu að ég væri að hrósa Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni ( sem reyndar er hvorki skáld né rihöfundur) En það er mjög til siðs í nútímafjölmiðlun að búa til villandi …
Um „bull,ergelsi og pirru“
Á föstudagskvöldið (08.05) hlustaði ég aldrei þessu vant á talsverðan hluta Hrafnaþings á sjónvarpsstöð Ingva Hrafns ÍNN. Þar skeggræddu fjórir Sjálfstæðismenn landsins gagn og nauðsynjar, pólitíkina í dag , hina vondu ríkisstjórn og þá hrikalegu framtíð sem blasti við, ef Jóhanna og Steingrímur mynduðu ríkisstjórn. Tveir fastagestir og stjórnandinn, Ingvi Hrafn, höfðu fátt annað til …
Kann Ríkisútvarpið ekki íslensku?
Sú spurning hefur óhjákvæmilega vaknað hvort forrráðamenn Ríkisútvarpsins kunni ekki íslensku eða séu með ráðnum hug að vinna skemmdarverk gegn tungunni ? Lögum samkvæmt á Ríkisútvarpið að standa vörð um tunguna . Þau lög eru þverbrotin næstum daglega, rétt eins og stofnunin virðir ekki lögbundið bann við auglýsingum um áfengi með sífelldum illa dulbúnum bjórauglýsingum. …
Stórmerkilegar stórfréttir í eindálkum í Mogga
Makalaust er að lesa um það í Mogga að það kosti Sparisjóð Mýrasýslu 121 milljón að losna við sparisjóðsstjórann,sem hlýtur að hafa haft forystu um þau verk sem leiddi þessa sterku fjármálastofnun og héraðssóma lóðbeint á hausinn. Kannnski hefði sparisjóðsstjórinn frekar átt að greiða sparisjóðnum þessa upphæð, en það sæi sjálfsagt ekki högg á vatni …
Molar um málfar LXIII
Líklega er til lítils að gera athugasemdir við málvillur á bloggsíðum. Sigríður Laufey Einarsdóttir (27.04.) skrifar: „Hvers vegna einhliða áróður þar sem heildarhagsmunir þjóðarinnar er ekki gerð skil … “ Hér ætti auðvitað að standa: — „ … þar sem heildarhagsmunum þjóðarinnar eru ekki gerð skil“. Ekki virðist það skipta miklu, þegar að málvillum kemur, …
Óþolandi aðdróttun Framsóknarformannsins
Það er óþolandi fyrir starfsfólk íslensku utanríkisþjónustunnar að sitja undir alvarlegri, og fáheyrðri, aðdróttun formanns Framsóknarflokksins sem segir í þessari frétt að hann hafi trúnaðarupplýsingar sínar frá : „fólki sem ég þekki í utanríkisþjónustunni,“ . Allir starfsmenn utanrikisþjónustunnar liggja samkvæmt þessu undir grun um að hafa brugðist trúnaði og þagnarskyldu í opinberu starfi. Það …
Molar um málfar LXII
Þetta var skrifað í Vefdv 26.04. : „Einnig var nokkuð um að strikað væri yfir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og Þráinn Bertelsson.“ Væri ekki ágætt ef ritstjóri DV kenndi sínum skriffinnum meginreglur um beygingu mannanafna? ' Það er algjör óþarfi að bæta orðum inn í orðatiltæki sem eru föst í tungunni. Talað er um að vera …