Það er hreint með ólíkindum að verkalýðsfélag skuli fara inn á þá braut að styrkja skottulækningar með þeim hætti sem Verkalýðsfélag Húsavíkur ætlar nú að gera. Það hefur líklega farið framhjá verkalýðsfélaginu að fyrirtækið sem rekur þetta „klósettkompaní“ hefur nýlega orðið uppvíst að því að misnota heilbrigðiskerfið og láta skattgreiðendur niðurgreiða blóðrannsóknir vegna þeirra sem …
Molar um málfar LXXII
Móðurmálið fær ekki mikla umfjöllun í fjölmiðlum. Lengi vel birti Morgunblaðið reglulega þætti dr. Jóns G. Friðjónssonar prófessors um mál og málnotkun. Þessir þankar,- þessi þarfa umfjöllun er einhverra hluta vegna horfin af síðum blaðsins. Það samræmist líklega ekki nýrri ritstjórnarstefnu að fjalla um notkun tungunnar með reglubundnum hætti. Skyldi ritstjórnin hafa kannað hve margir …
Molar um málfar LXXI
Fróðlegt er að skoða bloggskrif um umræðurnar um stefnuræðu forsætisráðherra fyrr í vikunni. Það leynir sér ekki að nýtt skjallbandalag er komið til sögunnar ( Ekki veit ég hver er höfundur þess ágæta orðs, skjallbandalag, sem er prýðileg íslenskun á því sem á ensku er kallað Mutual Admiration Society) Þetta minnir svolítið á upphafsdaga Kvennalistans …
Molar um málfar LXX
Í hádegisfréttum RÚV (18.05.09.) var rætt við Jakob R. Magnússon formann Stefs. Hann sagði: „..tilfinningalega og umbúðalega …“ Umbúðalega er eitt ljótasta orð sem ég hef lengi heyrt. Stundum hvarflar það að manni að fréttastjórar/ritstjórar telji sig geta boðið okkur hlustendum/lesendum hvaða málfarslegan subbuskap sem er. Í fréttatíma Stöðvar tvö (19.05.09.) talaði fréttamaður um „… …
Þunnur grautur
Það er alltaf jafngaman að heyra Þóru Tómasdóttur,fréttaman tala sína fallegu norsku. Viðmælendur hennar íKastljósi, í kvöld , tveir kunnir norskir ESB andstæðingar, – annar að atvinnu, höfðu hinsvegar fátt nýtt fram að færa.Um það er ekki við hana að sakast. Séu svör Norðmannanna gaumgæfð, má lesa milli línanna að þeir vilja ekki að Ísland gangi …
Molar um málfar LXIX
Umsjónarmaður hádegisfrétta RÚV (17.05.09. Pálmi Jónasson) las í fréttayfirliti.yfirliti : „Orðalag tilllögu um Evrópusambandsaðild verður breytt,segir utanríkisráðherra.“ Þegar hlustað var á fréttina kom í ljós að utanríkisráðherra hafði ekki tekið svo til orða, enda kann Össur Skarphéðinsson undirstöðuatriði íslenskrar málfræði og beygingareglur tungunnar , — og vel það. Össur er enginn bögubósi. Það skorti hinsvegar …
Molar um málfar LXVIII
Stöku sinnum er hér vikið að málfari í auglýsingum. Á dögunum fórum við hjónin í bíó og sáum stórmerkilega heimildamynd um frumkvöðulinn Alfreð Elíasson og þá ágætu menn sem ásamt honum skópu Loftleiðaævintýrið. Það er ástæða til að fjalla frekar um þessa mynd, þótt ekki verði það gert hér og nú. Mikið var sýnt af …
Molar um málfar LXVII
Ekki kunni ég við það orðalag í ræðu forseta Íslands við setningu Alþingis, er hann talaði um „djúpstæða gjá. “ Talað er um djúpa gjá eða hyldýpisgjá , en að tala um djúpstæða gjá finnst mér vera uppskrúfað bull. Þetta er reyndar ekki í fyrsta skipti, sem í ljós kemur að vandað málfar er ekki …
Auglýsingaþingmenn
Ný tegund auglýsingamennsku nokkurra nýkjörinna þingmanna sá dagsins ljós við þingsetninguna í dag. Þann rúmlega hálfan annan áratug sem ég átti sæti á Alþingi var það ævinlega svo að örfáir þingmenn , kannski 2-3, sóttu ekki guðsþjónustuna í Dómkirkjunni fyrir þingsetningarfund. Það þótti engum tiltökumál. Það var þeirra val. Um það var ekkert rætt. Þessir …
Molar um málfar LXVI
Þegar farið var yfir efni dagblaðanna í morgunútvarpi Rásar eitt (14..05.09.) ,þar sem málfar er yfirleitt til fyrirmyndar, varð umsjónarmanni á að rugla saman orðunum eftirmál og eftirmála. Að þessu hefur verið vikið hér áður. Umsjónarmaður talaði um eftirmála jarðskjálftanna á Suðurlandi í fyrra. Eftirmáli er niðurlagsorð, eða stuttur kafli með þökkum eða skýringum í …