Molar um málfar LXXXI

Í fréttum  RÚV  (kl. 1800 31.05.09.)  var  sagt:  Tilraunir til að koma á  lýðræðisumbótum í Zimbabwe hafa brugðist.  Tilraunir bregðast  ekki , þær  mistakast eða fara út um þúfur.  Einkennilega fannst mér   til orða  tekið í hádegisfréttum RÚV (01.06.09.) þegar sagt  var: … ef  svo óheppilega vill  til að  flugvél hverfur  af ratsjá… Silja,sem er áhugamaður um …

Lesa meira »

„Svona gera menn ekki“ !

Morgunblaðið birti um daginn myndir af veggjakroturum, sem  voru staðnir að verki.  Mér finnst í  góðu lagi  að  birta  myndir af  bílum ökumanna,sem misnota  stæði fatlaðra. Það  skiptir engu hvort  ökumaðurinn  situr í bílnum,  eður ei. Söm  er gjörðin.  Siðað fólk leggur  ekki í stæði sem ætluð eru  fötluðum.  Eftir að hafa kallað mig  dóna …

Lesa meira »

Molar um málfar LXXX

Hefur  feðrað 21 barn  segir í fyrirsögn á  Vefvísi (30.05.09.) í frétt um mann  sem  eignast  hefur   21 barn með 11 konum og er ekki orðinn  þrítugur. Á íslensku er það  að feðra barn að  segja  hver  faðir  barns  er, benda  á  föður.  Á ensku  er  sögnin to  father  notuð í merkingunni  að  geta börn  að  …

Lesa meira »

Molar um málfar LXXIX

 Í  tíufréttum RÚV sjónvarps (28.05.09.) var þannig tekið  til orða að hross hefðu  drepist vegna vanfóðrunar. Eðlilegra  hefði verið að segja að hrossin hefðu drepist af því þau voru í  svelti. Í fréttum  Stöðövar tvö (29.05.09.) var sagt, að Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra  hefði neitað  viðtali í dag.  Ekki finnst mér  það gott orðalag. Betra  og  …

Lesa meira »

Molar um málfar LXXVIII

 Málsubbuauglýsingin frá  fyrirtækinu Andersen & Lauth  birtist aftur óbreytt  í Morgunblaðinu (29.05.09.) Fyrirtækið  og  auglýsingastofan ,sem gert hefur  þessa   auglýsingu, eru  bæði  gersneydd allri  sómatilfinningu. Auglýsingin er  full  af slettum og villum.  Vikið  var að  ambögunni  að   eitthvað  sé   samkvæmt Sameinuðu þjóðunum  eða  samkvæmt  ráðuneytinu í  síðustu  Molum.  Í Morgunblaðinu (29.05.09.) stendur  í  smáfrétt  samkvæmt  lögreglunni. Finnst  …

Lesa meira »

Molar um málfar LXXVII

 Myndirnar sem  fylgja  þessari  færslu eru  ekki teknar í útlöndum. Þær  voru  teknar í Kringlunni  í Reykjavík þriðjudaginn  26. maí.  Þar erum  við ávörpuð á  ensku þegar  við  komum þangað  í verslunarerindum   eða  til að  fá okkur kaffisopa. Spaugileg fyrirsögn um alvarlegt atvik  var á forsíðu  Fréttablaðsins (26.05.09.) Fyrirsögnin er  svona:  Bankaræningi í hjartastoppi:Sparkaði sér leið …

Lesa meira »

Molar um málfar LXXVI

Tvö dæmi úr fréttum (24.05.09.) Stöðvar tvö: Tveir Íslendingar til  viðbótar  eru nú grunaðir um að hafa smitast af  svínainnflúensu. Þetta  orðalag  ber  vott um  skort á máltilfinningu. Það er  eins og  mennirnir  séu  grunaðir um refsivert athæfi. Eðlilegra  hefði verið að  segja:  Grunur leikur á að tveir Íslendingar  til viðbótar hafi  smitast … Þannig  var  …

Lesa meira »

Molar um málfar LXXV

 Meira um  auglýsingar. Makalaus  heilsíðuauglýsing frá  fyrirtækinu  Andersen & Lauth birtist í  Fréttablaðinu 23.05.09.  Undir  nafni  fyrirtækisins stendur á  ensku: Outlet, Vintage & One off. Hversvegna    enska ? Er ekki verið að höfða  til  Íslendinga ? Efst í auglýsingunni er orðið  verslun  skrifað með  z . Það er  einnig gert í  fyrstu línu meginmáls  auglýsingatextans.   …

Lesa meira »

Molar um málfar LXXIV

 Oft er firnagott  efni að finna í  dagskrá RÚV. Gott  dæmi um það er þáttur Jónasar Jónassonar Sumarraddir. Að þættinum loknum (24.05.09.) voru flutt  tvö  dönsk  sönglög ,sem  var  viðeigandi, meðal annars vegna þess að í þætti Jónasar var sögulegt viðtal  við  tengdason Íslands  leikarann Poul Reumert.  Að þessu loknu komu stuttar  auglýsingar. Þar var  …

Lesa meira »

Molar um málfar LXXIII

Árna Þór setur niður með því að setja þetta herbergismál í pólitískt samhengi. Þetta  skrifar  skrifstofustjóri  Framsóknarflokksins í vefritið Pressuna (22.05.09.). Hann er  er að  skrifa  um  húsnæðismál innan veggja   Alþingishússins, sem  eru  Framsóknarmönnum hugleiknari en húsnæðismál almennt þessa dagana.  Talað er um að  einhver  setji niður , ef hann  lækkar í áliti . Það á ekki  að  segja  …

Lesa meira »

Older posts «

» Newer posts