Las á dv.is, að kínverskur ráðamaður hefði beðist afsökunar á snjóstormi ! Nokkrum mínútum síðar var í fréttayfirliti RÚV kl 1800 talað um snjóstorm. Hvað varð um hið gamla góða orð hríð, nú eða stórhríð? Snjóstormur er aulaþýðing úr ensku,- snowstorm. Það er öldungis óþarft í íslensku og á sér enga sögu í okkar góða …
Ótrúlegt !
Mér finnst alltaf jafn ótrúlegt að heyra stjórnmálamenn tala í alvöru um flugvöll á Hólmsheiði. Hver er loftlínuvegalengd þaðan til Keflavíkurflugvallar? 35 kílómetrar ? Eitthvað nálægt því.Hver skyldi vera munur á ferðatíma úr vesturbænum í Reykjavík til Keflavíkur og upp á Hólmsheiði? Sáralítill, ef nokkur.Reykjavíkurflugvöllur á að fá að vera í friði. Það er fjarstæða að …
Fatasaga úr Sjónvarpinu
Umræðan um fatakaup stjórnmálamanna og – sjónvarpsmanna rifjaði upp meira en 30 ára gamla minningu,sem mér þykir alltaf dálítið vænt um.Þá fórum við sjónvarpsmenn á fimmtudegi (ekkert sjónvarp á fimmtudögum þá) að vorlagi , líklega 1975 eða 1976 og hittum bónda á vesturlandi, sem hafði orðið fyrir búsifjum því vargfugl lagðist …
Ekki plata okkur !
Í seinni fréttum RÚV sjónvarps eitt kvöldið í vikunni var fjallað um breytingu á mönnun neyðarbíla Landspítalans á höfuðborgarsvæðinu en læknar verða hér eftir ekki lengur með í för. Ábúðarmikill fréttamaður stilliti sér upp við bækistöð bílanna og sagði efnislega um leið og neyðarbíll ók út með blikkandi ljós …. og nú er hann að fara …
Ný stefna hjá RÚV-Sjónvarpi ?
Það var athyglisvert í fréttum sjónvarps í gærkveldi , er fjallað var um marg umrædda stöðuveitingu ,að Þorsteinn Davíðsson var nefndur Þorsteinn Davíðsson Oddssonar. Ég velti því þá fyrir mér , ef nafn mitt skyldi bera á góma í fréttum ,hvort ég yrði nefndur Eiður Svanberg Guðnason Guðmundssonar. Ég tel það fremur ólíklegt. Gilda þá einhverjar aðrar …