Fjaðrafokið vegna ferðar tveggja ráðherra og föruneytis til Búkarest er með ólíkindum.Einhver mundi segja að þetta væri til vitnis um málefnafátækt stjórnarandstöðunnar. Auðvitað eru þess mýmörg dæmi að ráðherrar og þingmenn hafi ferðast öðruvísi en með áætlunarflugi. Til dæmis með flugvél Landhelgisgæslu eða flugmálastjórnar meðan hún var til. Þetta er auðvitað gert þegar það er hagkvæmt. …
Hrollvekja
Myndir Ríkissjónvarpsins af niðurníddum húsum í gamla bænum í Reykjavík í kvöld vorum gömlum Reykvíkingi hrollvekja. Hélt sannast sagna að svona myndir kæmu bara frá fátækrahverfum milljónaborganna í útlöndum. En þetta er við bæjardyrnar,– á þröskuldinum hjá okkur. Það er eitthvað mikið að í borgarkerfi þar sem svona gerist. Ég trúði varla mínum eigin augum. Hvernig ætlar …
Sálmabókin með kaffinu
Nýlega heyrði ég endurtekinn útvarpsþátt á Útvarpi Sögu. Þetta var reyndar ekkii þáttur í eiginlegum skilningi heldur langdregið lof um tiltekið fyrirtæki og framleiðslu þessu. Átti í rauninni ekkert skylt við alvöru dagskrárgerð. Umsjónarmaður átti erfitt með að halda sig við íslensku og hrópaði upp:“ I don´t believe you! „, þegar viðmælandinn náði hæðum í …
Fín fjárfesting
Það væri örugglega fín fjárfesting að byggja bílageymsluhús við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Furðulegt að slíkt hús skuli ekki löngu risið. Þegar Norðmenn ákvaðu að loka Fornebu-flugvelli við Osló g gera nýjan völl á Gardemoen átti það sér langan aðdraganada og harðar pólitískar deilur urðu um staðarvalið. Þremur árum áður en Fornebu flugvelli var lokað, var …
Takmarkalaus snilld
Stundum finnst venjulegum skattborgara að snilldinni sem býr í Ráðhúsinu við Tjörnina og reyndar einnig á næsta bæ, Alþingishúsinu. séu næsta lítil takmörk sett. Í Ráðhúsinu er talað um að gera nýjan flugvöll á Hólmsheiði eða á Lönguskerjum úti í hafsauga. Snertispöl frá Hólmsheiðinni er Keflavíkurflugvöllur, einn stærsti og fullkomnasti flugvöllur …
Frítt í strætó
Í Þórshöfn í Færeyjum er frítt í strætó, – fyrir alla. Engin skírteini. Ekkert vesen. Þetta hefur gefist svo vel, að nýlega var ferðum fjölgað og þjónusta bætt. Í Reykjavík er rætt um að fjölga þeim sem fá frítt far en láta suma borga. Fróðlegt væri ef reiknað væri út hver kostnaðurinn er við skírteini, kortasölu, …
Rasshandarlag
Æ betur kemur í ljós hvert rasshandarlag hefur verið við útgáfu nýrrar Biblíuþýðingar, sem í allri hógværð er kölluð “Biblía 21. aldar.” Líklega var það dr. Jón G. Friðjónsson, prófessor ,sem fyrstur vakti athygli á ambögum og málvillum af ýmsu tagi í nýju útgáfunni.Hann hlaut litlar þakkir aðstandenda útgáfunnar fyrir , muni ég rétt. Þeir …