Það var og !

Þetta minnir  á spaugöguna um  stjórnarmanninn í Skallagrími h.f.,  sem  rak  Akraborgina  á sínum tíma. Hann var  spurður hvernig  reksturinn gengi. "Alveg ljómandi vel,"  var  svarið –   "Nema  fjárhagshliðin" Öll meginmarkmið með Grímseyjarferju náðust

Löghlýðin þjóð ?

 Auðvitað erum  við Íslendingar löghlýðin þjóð. Það væri nú annaðhvort. En við erum líka  býsna slyng að  fara  í kringum lögin,  þegar okkur ekki líkar  efni laganna. Það er bannað að auglýsa áfengi.  Daglega   dynja á okkur bæði í blöðum og sjónvarpi bjórauglýsingar með tælandi  texta og myndum sem  lofa ágæti bjórs.Okkar fremsti leikari  les  textann,sem …

Lesa meira »

Vonandi misheyrðist mér !

Heyrði ekki betur  en  menntamálaráðuneytið,sem á að standa vörð um íslenska tungu,  auglýsti ráðstefnu í hádegisútgarpinu undir heitinu: " Ekta  eða  feik". Menntamálaráðuneyti  lýðveldisins á  að nota íslensku í auglýsingum. Vonandi misheyrðist mér. Ég óttast þó  reyndar að ég hafi heyrt rétt. Engum til sóma. Hvorki  ráðuneytinu né Ríkisútvarpinu.

Ítarefni um kjötinnflutning

Áhugasömum um frekari fróðleik skal bent á  leiðara Ólafs Þ. Stephensens  ritstjóra  24 Stunda í dag  „Gleymska Guðna“ . Húmoristarnir á  ritstjórn blaðsins  hafa svo sett   bráðfyndna grein   Bjarna Harðarsonar alþingismanns Framsóknar   um sama  efni  „Kratar  allra flokka og  hrátt kjöt“ á síðuna andspænis  leiðaranum. Í samhengi  er þetta tvennt  bráðskemmtilegur og fróðlegur lestur. …

Lesa meira »

Ótrúleg mistök í Kastljósi !

Í Kastljósi  Ríkissjónvarpsins í kvöld var  boðað viðtal  við  aðaldómara í  málinu  gegn Birgi Páli Marteinssyni,sem  dómur var keðinn upp í á  miðnætti sl.  föstudag í Þórshöfn í Færeyjum.. Ekki var  rætt  við  dómarann, heldur var flutt  viðtal við verjanda Birgis Páls, lögmanninn Óla Jakúp Kristoffersen úr færeyska  sjónvarpinu í kvöld. Það  kom margsinnis  greinilega …

Lesa meira »

Ást á ensku

Einhverra hluta   sýnist mér að konur í hópi vinstri  grænna hafi sérstakt  dálæti á ensku. Ekki er  langt  síðan ritari  flokksins Sóley Tómasdóttir  sagði í  Silfri Egils „Jæja, whatever“. Nýlega  sagði  þingmaður  VG Álfheiður  Ingadóttir í sama þætti. „Ég segi nú bara:  So  what !“ Í  dag skrifar  svo  VG bloggarinn  Jenný Anna;  „Ég missti  …

Lesa meira »

Faðir, um föður…..

 Það verður nú  eiginlega að gera þá  kröfu  til þeirra sem skrifa fréttir á mbl.is að þeir kunni að beygja  algeng orð  eins og  faðir.  „Faðir þess síðarnefnda bar fljótt að og var honum gerð grein fyrir málinu… “   Engin  máltilfinning. Engin íslensku kunnátta.  Ekki boðlegt í alvörufjölmiðli. Ungir veggjakrotarar handsamaðir

Hrátt kjöt

Svolítið  sérkennilegt hvernig  fjölmiðlar tönnlast á því að nú  eigi  að leyfa  innflutning á „hráu kjöti“ eins og  hver  étur upp eftir öðrum. Hversvegna ekki fersku kjöti?  Við flytjum  út  ferskan fisk.Minnist  þess aldrei að hafa heyrt  talað um að  flyttum út  hráan  fisk !

Einkaþotuflug úr iðrum tölvunnar…

Í iðrum tölvunnar minnar  fann ég langa  frásögn  sem ég hafði skrifað  í september  1985 er við fórum sex alþingismenn  með  einkaþotu , – skrúfuþotu   frá  Helga Jónssyni til Nuuk í Grænlandi.Tilefnið var stofnfundur vestnorræna þingmannaráðsins. Flugvélin var  tekin á leigu  til að  spara  ferðatíma. Flogið var beint frá  Reykjavík til Nuuk. Flugtíminn var 3 klukkustundir og 40 mínútur.Hinn …

Lesa meira »

Ekki sannfærandi

Verð að játa að mér finnst  það ekki mjög  sannfærandi þegar félagar úr  Ferðaklúbbnum 4×4  koma á BMW  slyddujeppunum sínum  til að loka  aðgengi að olíubirgðastöðinni í Örfirisey. Þetta  verður ennþá hjákátlegra ef satt er sem  fjölmiðlar hafa  greint frá, að  félagar í 4×4 njóti  sérstakra afsláttarkjara hjá olíufélögunum við  kaup á eldsneyti. Það getur nú reyndar …

Lesa meira »

Older posts «

» Newer posts