Á þessum stað var fyrir nokkru vikið að hinni nýju nafnháttarsýki,sem nú verður æ algengari og breiðist raunar út eins og eldur í sinu. Í hádegisfréttum RÚV var í dag rætt við hagfræðing hjá Glitni. Í örstuttu viðtali sagði hagfræðingurinn tvisvar sinnum „er að valda“ og tvisvar sinnum „höfum verið að sjá“. Hversvegna ekki „veldur“ og …
„Ekki frétt“ Sjónvarpsins
Sérkennileg „frétt“ var í seinni fréttatíma Ríkissjónvarpsins í gærkveldi. Þar voru birt viðtöl við tvo starfsmenn Veðurstofu Íslands um það hvort hafíseftirlit Veðurstofunnar væri nægilega gott. Horfendur/hlustendur voru engu nær eftir viðtölin. Stutt er síðan fréttastofa Ríkissjónvarpsins varði miklum tíma í að fjalla um meint einelti á Veðurstofunni. Nú er spurt: Lítur fréttastofa Ríkissjónvarpsins á …
Hissa
Svolítið varð ég hissa, eins og sjálfsagt fleiri lesendur Morgunblaðsins þegar þingfréttamaður blaðsins lýsti eindregnum persónulegum skoðunum sínum á stefnu ríkisstjórnarinnar í varnarmálum og gæslu loftrýmis Íslands. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra ræddi þessi sérstæðu skrif og sagði mjög svo réttilega, að fréttamaðurinn væri að efna til ritdeilu við nýjan ritstjóra Morgunblaðsins. Þingfréttamaðurinn gefur Birni svo olnbogaskot í grein …
Eldur í sinu
Nútíðar-nafnháttarsýkin fer eins og eldur í sinu um málheim íslenskrar tungu. Úr ræðustóli Alþingis var sagt í dag: „Ég finn að skólarnir eru að standa sig vel“. „Hver er að gleyma peysunni sinni?“ , sagði starfsmaður við gegnumlýsingarvélina í flugafgreiðslunni á Reykjavíkurflugvelli á þriðjudaginn, þegar einhver hafði skilið eftir treyju á færibandinu. Hvað má til varnar verða? …
Málfar netmiðla
Hér eru stöku sinnum gerðar athugasemdir við málfar netmiðla/fjölmiðla. Þetta eru vinsamlegar ábendingar um það sem betur mætti fara. Oftast varðar þetta móðurmálið, íslenskuna þar sem grunnurinn virðist ekki alltaf traustur hjá þeim sem skrifa. En það er ekki bara að skriffinnum verði hált á svelli móðurmálsins, heldur skýst þeim stundum illilega þegar fréttir …
Þolmyndarþrugl
Eftirfarandi má lesa á fréttavef Morgunblaðsins í dag: :“Fimm ökumenn voru teknir af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis.” Spurt er: Hver tók þessa menn af lögreglunni ? Af hverju ekki germynd ? Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handsamaði fimm ökumenn í nótt grunaða um ölvun við akstur. Úr næstu frétt á …
Sagan endurtekur sig
Flakkarar fyrri ára minnast þess að á Kastrupflugvelli var íslensku flugfélögunum jafnan úthlutað stæði eins langt frá aðalbiðsalnum og mögulegt var, við útgönguhlið 24 eða 25. Þangað var býsna langur gangur. Sumir sögðu að þetta bæri vott um kærleik Dana í garð Íslendinga,en aðrir sögðu að stæðin lengst frá biðsalnum væru ódýrari en þau þau sem …
Málfar í vikulokin
Einu sinni þótti fínt að sletta dönsku. Nú þykir það hálfhalllærislegt. Nú þykir hinsvegar sumum fínt að sletta ensku. Við þurfum að gera það hallærislegt sem það er. Oft sletta þeir mestri ensku sem minnst kunna fyrir sér í því annars ágæta máli. Var að enda við að hlusta á þáttinn Í vikulokin á RÚV. Heyrði …