Mikil er gúrkutíðin ef það telst fréttnæmt að krakkar kasti snjóboltum í bíla. Þetta var mikið sport í Reykjavík í gamla daga. Ef ökumenn eru svo trekktir að hætt er við að þeir missi stjórn á ökutækinu ef krakki kastar í það snjóbolta, þá ættu þeir kannski alls ekki að aka bíl. Köstuðu snjóboltum í bíla
Kirkjan í kapphlaupið
Það hefur verið kapphlaup hjá landeigendum, einkum sunnanlands ,að skipuleggja landssvæði undir sumarhúsabyggð. Nú er kirkjan komin í kapphlaupið eftir fréttum að dæma. Langt er þá seilst til að krækja í krónur handa kirkjunni. Það svo ótrúlegt ,að nánast undir kirkjuvegg Skálholtsdómkirkju eigi að skipuleggja sumarhúsabyggð, að maður næstum klípur sig í handlegginn til að …
Sérkennilegt
Sérkennilegt er,að fréttastofa Sjónvarpsins skuli ekki greina á milli gamalla og nýrra mynda í fréttum. Í fréttatímum erlendra stöðva eru safnmyndir merktar sérstaklega („library pictures“),þegar þær eru sýndar, til aðgreiningar frá nýjum , áður ósýndum fréttamyndum. Ríkissjónvarpið sýnir okkur sömu gömlu safnmyndirnar stundum tvisvar í sama fréttatímanum án þess að geta þess að um nokkura …
Kjósa hvað?
Ýmsir skriffinnar á bloggsíðum hrópa nú hátt um að kjósa eigi að nýju til borgarstjórnar í Reykjavík. Þótt ekki sé ég lögfræðingur,þá veit ég ekki betur , en lögbundið sé að kosið sé til sveitarstjórna síðasta laugardag í maí (nema það sé laugardagur fyrir Hvítasunnu) á fjögurra ára fresti. Allt tal um nýjar kosningar er …
Léleg fréttaþjónusta
Af gömlum vana les ég netútgáfur China Daily og People´s Daily eða Dagblaðs alþýðunnar. Undanfarna daga hef ég svipast um eftir fréttum af heimsókn forseta Íslands til Kína, en þar er hann skv. fréttum í boði Hu Jintaos Kínaforseta.Mér hefur ekki tekist að finna staf um heimsókn forsetans.Kannski hefur það farið framhjá mér. Hinsvegar er …
1644 og 1944
Fyrir nokkrum kvöldum, er ég var að bíða eftir að horfa á færeysku eða íslensku sjónvarpsfréttirnar vafraði ég inn á danska rás þar sem spurningaþætti var að ljúka. Þetta var „Viltu vinna milljón?“ þáttur og fyrir svörum sátu feðgin. Hann á miðjum aldri. Hún um tvítugt. Spurt var: Hvenær sögðu Íslendingar sig úr lögum við …
Hversvegna?
Sjónvarpið er duglegt að sýna beint frá margháttuðum íþróttaviðburðum, boltaleikjum og bílaleikjum. Tilkynnt er ,að nótt eða undir morgun verði bein útsending frá bílaleik fullorðinna úti í heimi. Þegar sportið á í hlut er ekkert sparað, nægur tími og nógir peningar. Hversvegna getur Sjónvarp allra landsmanna ekki sýnt okkur beint frá þeim einstæða tónlistarviðburði, þegar Víkingur …
Það skyldi þó ekki vera,
að sá góði árangur,sem náðist með samstarfi fjölmargra aðila, þegar tókst að hafa hendur í hári stórglæpamanna,sem voru að smygla eiturlyfjum til landsins, sé að hluta til að þakka markvissri eflingu lögreglu og landhelgisgæslu undanfarin misseri. Úr herbúðum sumra hafa verið rekin upp ramakvein, þegar gripið hefur til aðgerða til að styrkja sérsveit …
Er einhver hissa ?
Er einhver hissa ,þegar bankastjóri Landsbankans segir, að ef til vill verði nauðsynlegt að taka upp ensku í daglegum störfum í bankanum ? Ekki ég. Samskipti við útlönd eru svo ríkur þáttur í starfsemi íslenskra fjármálastofnana, að hluti starfsmanna talar allan daginn jöfnum höndum ensku og íslensku, því ekki tala erlendir bankamenn íslensku, – enn sem …
HISSA?
Einhvernveginn finnst mér ,að það ætti að vera sjálfgefið að kjöt af lömbum sem alin eru á hvönn hafi hvannarkeim eða hvannarbragð. Tvílemba,sem afi minn átti gekk í hvannastóði við Réttarholt í Garði sumarið 1948. Kjötið varð næstum óætt, svo megnt hvannarbragð var að því. Hélt annars að það væri bragð að mat en ekki …