Molar um málfar og miðla 1837

VERÐSKULDUÐ VERÐLAUN Það var verðskuldað og löngu tímabært að Guðjón Friðriksson , rithöfundur og sagnfræðingur, hlyti verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu (16.11.2015). Bubbi Morthens hlaut sérstaka viðurkenningu. Þekki lítið til verka hans. Til hamingju, báðir tveir. Fréttin um afhendingu verðlaunanna sýndist mér alveg fara framhjá Stöð tvö.   RÉTT SKAL VERA RÉTT Sigvaldi …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1836

  DAGUR ÍSLENSKRAR TUNGU Í dag, 16. nóvember, er Dagur íslenskrar tungu, fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar. Allir dagar eiga að vera dagar íslenskrar tungu. Í dag er fánadagur. Þess vegna flöggum við, sem höfum fánastöng. Til hamingju með daginn!   ÓREIMDIR SKÓR Edda skrifaði (12.11.2015) vegna fréttar á mbl. is : ,, Einni konu voru dæmd­ar 225 …

Lesa meira »

Molar um málfar og miða 1835

  AÐ SAFNA FYRIR Í morgunþætti Rásar tvö (11.11.2015) var talað um hið furðulega mál hjúkrunarfræðings, sem ákærður hefur verið manndráp af gáleysi. Þar var sagt að verið væri að safna fyrir henni. Þetta er ekki rétt orðalag. Verið er að safna fé henni til stuðnings. Þegar maður er að safna fyrir einhverju , þá …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1834

  ÚTSLÁTTUR Þ.G. skrifaði vegna fréttar á mbl.is (11.11.2015): ,,Frétt á vefmogga dagsins: „Ekki er útilokað að stálplata hafi slegið út þegar Perla var sjósett“. Skrifari hefur greinilega litla hugmynd um hugtakið útsláttur. Rafliðar slá út vegna yfirálags en stálplötur eiga til að rifna, tærast eða springa.”” Hárrétt ábending. Þakka bréfið. Sjá: http://www.mbl.is/frettir/innlent/2015/11/11/ekki_hefur_tekist_ad_thetta_framskip_perlu/   DROPINN …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1833

ALLT ER STAÐSETT Úr frétt á mbl.is (07.11.2015):,, Hjól­hýsið var staðsett í Garðabæn­um.” Hjólhýsið var í Garðabænum. Sjá: http://www.mbl.is/frettir/innlent/2015/11/07/busettur_i_hjolhysi_i_gardabaenum/   ÞÁGUFALLIÐ Haft eftir formanni fjárlaganefndar á mbl.is (07.11.2015): ,,Lang­ar þessu fólki til þess að land­inu gangi illa?” Sjá: http://www.mbl.is/frettir/innlent/2015/11/07/osynilegur_her_neikvaedrar_umraedu/ Tek sérstaklega fram ,að þetta er ekki árás, heldur ábending og ekki úr launsátri.   VIÐTENGINGARHÁTTUR …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1832

FRÁ VESTURBÆINGI – Í REYKJAVÍK Vesturbæingur skrifaði (07.11.2015): ,,Á fréttamáli tekst engum lengur neitt, heldur er sagt,- slökkviliðið náði að kæfa eldinn, hann náði að gera þetta og náði ekki að gera hitt, þegar honum tókst þetta og tókst hitt ekki. Frá útlöndum er gjarna sagt, að forseti eða ráðherra hafi verið hvattur til þessa …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1831

HLUSTUNARÞOLI! Sigurður Sigurðarson skrifaði Molum (06.11.2015): ,,Veistu hvað „hlustunarþoli“ er? Nei, auðvitað ekki, en þú heldur að það sé sá sem neyddur er til að hlusta á eitthvað. Stór misskilningur. Í Morgunblaðinu 5. nóvember 2015 er grein á blaðsíðu 13 undir fyrirsögninni: „Sími lögmanns var hleraður“. Þar er meðal annars vitnað í lokaritgerð í lögfræðinámi …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1830

TRÉKOL Í morgunfréttum Ríkisútvarps (04.11.2015) var talað um trékol. Var ekki verið að tala um það sem við köllum viðarkol á íslensku?  Á norsku er talað um trekull. Molaskrifari gat ekki skilið fréttina á annan veg.   AÐ FORSELJA Úr undirfyrirsögn í Fréttablaðinu (04.11.2015): ,,Von er á 50 rafjeppum til landsins sem flesta er búið …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1829

  BÍLARNIR KOMU ÚR GAGNSTÆÐRI ÁTT Lesandi benti á frétt á mbl.is (02.11.2015): Í fréttinni segir: ,, Þar rák­ust sam­an tvær bif­reiðar, sem voru að koma úr gagn­stæðri átt” : Hann spyr:,, Eru bílar hættir að mætast?” Hann kveðst hafa fengið þær upplýsingar á mbl.is að orðalagið sé ættað frá lögreglunni fyrir austan. Viðmælandi hans …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1828

  MÁLFJÓLUFJÖLD Ótrúlega margar málfjólur, málvillur, voru í hádegisfréttatíma Bylgjunnar á sunnudag (01.11.2015) Í frétt um flóttamannavandann var sagt að talið væri að um 400 þúsund flóttamenn…muni verða neitað um landvistarleyfi. Hefði átt að vera, –  talið væri að um 400 þúsund flóttamönnum muni verða neitað um landvistarleyfi. Í frétt um flugslysið á Sinai-skaga sagði …

Lesa meira »

Older posts «

» Newer posts