UM VIÐTENGINGARHÁTT Molavin sendi eftirfarandi ( 31.10.2015): ,, „Dómarinn taldi að boltinn fór í höndina…“ segir visir.is (30.10.2015). Það er því miður orðið alvanalegt að fjölmiðlafólk kann ekki notkun viðtengingarháttar. Notar hann ýmist ekki – eða eins og æ oftar má sjá í fyrirsögnum, í röngu samhengi. Þar með breytist merkingin. Þetta er ekki lengur aðeins …
Molar um málfar og miðla 1826
BRÁÐ HVERS? Starfsfélagi frá því á árum áður sendi Molum eftirfarandi (29.10.2015): ,,Þakka fyrir málfarsþættina þína – það er reyndar ábyggilega óþægilega auðvelt að halda slíku úti! Rakst á frásögn í visir.is áðan um geitina sem brann við Ikea. Spurningin er bara hvað var bráð hvers, þegar upp var staðið (úr eldhafinu) …? „Verslunin IKEA …
Molar um málfar og miðla 1825
BRÉF FRÁ LESANDA Sigurður Sigurðarson sendi Molum eftirfarandi bréf (29.10.2015): 1. „Hnífaárásir gerðar á götum Ísraels“ segir í fyrirsögn í Morgunblaðinu á bls.17. þann 20. október 2015. Í fréttinni segir: „Ótti hefur gripið um sig í Ísrael vegna árása sem gerðar hafa verið á óvopnaða borgara á götum úti, oft með hnífum. Á sunnudag gerði ísraelskur bedúíni, Mohind …
Molar um málfar og miðla 1824
GANGA EFTIR Úr frétt á stundin.is (26.10.2015) um vigtarskekkjur hjá Bónus:,, ,,Verslanir eigi að vera með löggild mælingartæki og Neytendastofa gangi á eftir því að þau séu það.” Hér hefði átt að standa: ,, … og Neytendastofa gangi eftir því að þau séu það”. Ekki gangi á eftir því. Neytendastofa á að fylgjast með …
Molar um málfar og miðla 1823
AF OG FRÁ Bílnum stolið af Íslandsmeistara, sagði í fyrirsögn á mbl.is (26.10.2015). http://www.mbl.is/sport/efstadeild/2015/10/26/bilnum_stolid_af_islandsmeistara_3/ Miðað við þolmyndarmisnotkun margra fréttaskrifara mætti í fyrstu ætla að Íslandsmeistari hafi stolið bíl. Svo var reyndar ekki. Bíl var stolið frá Íslandsmeistara. Ekki af Íslandsmeistara. Nema hann hafi verið með bílinn á sér. ÞREKVIRKI Í síðdegisfréttum Ríkisútvarps (25.10.2015) var …
Molar um málfar og miðla 1822
TIL ATHUGUNAR Í þessari stuttu málsgrein af mbl. is (24.10.2015) eru tvær villur. ,,Rauði hálfmáninn í Líbýu greinir frá því að líkum 40 flóttamanna hafi rekið á land þar í landi í dag. Mohames al-Masrati, talsmaður Rauða hálfmánans í Líbýu, segir að 27 líkanna hafi fundist í bænum Zliten, austan við höfuðborgina Trípólí. Hin …
Molar um málfar og miðla 1821
Æ ALGENGARA ORÐALAG Í morgunútvarpi Rásar tvö (23.10.2015) var sagt um tónlistarmann: ,,Hún er ekki búin að gefa út plötu í (3?) ár”. Svona orðalag heyrist æ oftar. Einfaldara og betra: Hún hefur ekki gefið út plötu í þrjú ár. STÍGA TIL HLIÐAR Aftur og aftur var tönnlast á því í öllum miðlum …
Molar um málfar og miðla 1820
EYÐING VAR FRAMKVÆMD Molavin skrifaði :,, ,,Sú eyðing var framkvæmd…“ hefur Morgunblaðið (22.10.2015) orðrétt eftir framkvæmdastjóra Rekstrarfélags Stjórnarráðsins. Látum nú liggja milli hluta hversu rétt eða rangt það er, siðferðilega, að eyða afritum af opinberum tölvupóstum, sem geta skipt verulegu máli í stjórnsýslunni. Lög banna það reyndar. En nafnorðasýki smitast auðveldlega, t.d. úr ensku. …
Molar um málfar og miðla 1819
SAFNA METFÉ Molavin skrifaði (20.10.2015):,, „Safna metfé á Kickstarter“ segir í fyrirsögn á Vísi (19.10.2015). Það sem reynt er að segja í fréttinni er að ungum mönnum hafi tekist að afla fjár til að fullgera uppfinningu sína. Eitt af einkennum svonefndra fréttabarna er að þau eru ófeimin að nota orð og hugtök, sem þau samt …
Molar um málfar og miðla 1818
ÓÍNÁANLEGUR Ragnar Torfi skrifaði (19.10.2015): ,,Sæll Eiður. Í frétt á Vísi er fjallað um hallarbyltingu í félagi múslima á Íslandi. Ekki tókst að ná sambandi við Samann Tamimi vegna fréttarinnar. Hann reyndist Óínáanlegur Allaf lærir maður eitthvað nýtt. Ef ég er alltað við símann og svara öllum, þá hlýt ég að vera Sí-í-náanlegur !” http://www.visir.is/salmann-tamimi-oinaanlegur/article/2015151019125 …