HROÐVIRKNI Molavin skrifaði (18.09.2015): „Maðurinn, Hannibal Sigurvinsson, var gert að sök að hafa veist að ofbeldi að manni er sá sat í bifreið sinni…“ Svo segir í frétt Vísis 18. sept. Ég trúi því ekki að blaðamaðurinn kunni ekki að skrifa rétt venjulegt mál – en í þessu eina broti einnar málsgreinar fréttarinnar er svo …
Molar um málfar og miðla 1797
ENN UM STOKKINN Molavin skrifaði í gærkvöldi (18.09.2015): ,,Í sjónvarpsfréttum í kvöld, 18. sept. var sagt að Arnar Jónsson leikari muni ,,stíga á stokk“ hjá Leikfélagi Akureyrar í fyrsta sinn í langan tíma. Hér er bull á ferðinni. Hann mun stíga á svið, eða eins og oft er sagt, stíga á fjalirnar. En meðan fréttastjóri …
Molar um málfar og miðla 1796b
AÐ OLLA Sögnin að olla ( sem reyndar er ekki til ) kemur æ oftar við sögu í fréttaskrifum. Gunnsteinn Ólafsson benti á þetta nýlega dæmi á mbl.is (15.09.2015): ,,Þessar uppgötvanir ullu því að samband hans við móðurina sem ættleiddi hann versnaði og ákvað hann að flýja Pólland.” http://www.mbl.is/frettir/erlent/2015/09/15/endurfundir_eftir_70_ara_adskilnad/ Fréttin er um endurfundi tvíbura …
Molar um málfar og miðla 1796a
ENN UM VIÐTENGINGARHÁTT Prófessor emerítus Helgi Haraldsson í Osló skrifaði Molum (15.09.2015): ,,Sæll Eiður. Tek undir: Það er orðið æ algengara að sjá þessa villu; fyrirsögn á visir.is (13.09.2015): Fimm til tíu skipulagðir glæpahópar starfi á höfuðborgarsvæðinuhttp://www.visir.is/fimm-til-tiu-skipulagdir-glaepahopar-starfi-a-hofudborgarsvaedinu/article/2015150919518 Ég hef lagt til hliðar nokkur dæmi um þennan óþrifnað:RÚV: http://www.ruv.is/frett/kristnir-saeti-ofsoknum-i-israel DV 1. febr. 2013: Reykingar aukist í þeim aldurshópi sem tekur mest …
Molar um málfar og miðla 1795
VIÐ AKKERI Á SNÆFELLSNESI Skip Greenpeace liggur nú fyrir akkerum á Snæfellsnesi, var sagt í fréttayfirliti Bylgjunnar á hádegi á mánudag (14.09.2015). Grænfriðungar munu hingað komnir til að freista þess að trufla hvalveiðar skipa Hvals h.f. Ef skipið liggur við akkeri á Snæfellsnesi, eins og sagt var í fréttayfirlitinu truflar það varla hvalveiðar. Molaskrifari …
Molar um málfar og miðla 1794
ALGENG VILLA Það er orðið æ algengara að sjá þessa villu; fyrirsögn á visir.is (13.09.2015): Fimm til tíu skipulagðir glæpahópar starfi á höfuðborgarsvæðinu http://www.visir.is/fimm-til-tiu-skipulagdir-glaepahopar-starfi-a-hofudborgarsvaedinu/article/2015150919518 Þetta hljómar eins og verið sé að ráðgera að fimm til tíu skipulagðir glæpahópar skuli starfa á höfuðborgarsvæðinu. Undarleg meinloka. Hugsunarvilla. Í skýrslu lögreglunnar er talið, að sennilega starfi fimm …
Molar um málfar og miðla 1793
GÓÐ UMFJÖLLUN Í fréttum Ríkissjónvarps (12.09.2015) var prýðileg umfjöllun um ólöglega og forkastanlega framkomu íslenskra vinnuveitenda við erlent verkafólk, sem hingað kemur til starfa í skamman tíma, einkum í byggingariðnaði og ferðaþjónustu. Fulltrúi pólska sendiráðsins á Íslandi staðfesti þetta kurteislega og með hógværð í viðtali í fréttatímanum. Þetta er okkur til skammar. Sjónvarpið á …
Molar um málfar og miðla 1792
SEINT BRUGÐIST VIÐ Fréttastofa Ríkisútvarpsins var lengi að taka við sér og skynja að í Evrópu eru að gerast mestu stórtíðindi og hörmungar seinni ára. Stöð tvö var fljótari að átta sig. Það var ekki fyrr en á miðvikudag að fréttamaður Ríkisútvarps var kominn þangað sem atburðirnir voru að gerast í Evrópu og Ingólfur Bjarni …
Molar um málfar og miðla 1791
UM OFNOTKUN JBG. sendi Molum þetta ágæta bréf (08.09.2015): ,,Sæll, Eiður! Hvað finnst þér um (of)notkun orðsins „grasrót“? Nú er sýknt og heilagt verið að vitna til þessarar blessuðu „grasrótar“; hvað henni finnist; að nauðsyn beri til að hlusta á vilja hennar; að hún verði að fá að tjá sig. Ég veit ekki um þig …
Molar um málfar og miðla 1790
UM FRAMBURÐ Í útvarpsþætti skömmu eftir hádegið á mánudag (07.09.2015) var rætt við unga konu sem sagði: – sesett, einu sinni, ef ekki tvisvar. Það rann svo upp fyrir Molaskrifara að hún var að reyna að segja sem sagt. Og það sem hún var kynna eða segja frá var mjög skettlett , hún átti við …