Molar um málfar og miðla 1691

  Týndi áttum vegna lélegs skyggnis, sagði í fyrirsögn á mbl.is í gær (09.03.2015). http://www.mbl.is/frettir/innlent/2015/03/09/tyndi_attum_vegna_lelegs_skyggnis/ Menn týna ekki áttum! Maðurinn sem í hlut átti villtist. Hann varð áttavilltur. ,, Maður­inn hafði sam­band við lög­reglu rétt eft­ir klukk­an 16 í dag þegar hann hafði týnt átt­um vegna lé­legs skyggn­is.”Seinna í fréttinni segir: ,,Maður­inn var einn á …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1690

Í Morgunútgáfu Ríkisútvarpsins,sem flutt er á báðum rásum (06.03.2015) sagði umsjónarmaður, að í þættinum yrði okkur flutt slúður frá Alþingi. Íslensk orðabók hefur þetta að segja um orðið slúður: Þvaður, söguburður, þvættingur, kjaftasaga. Ekkert slíkt var flutt. Ekki sæmandi orðalag. Umsjónarmenn þátta í Ríkisútvarpinu þurfa að þekkja merkingu algengustu orða. Í þættinum var hlustendum sagt …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1689

Ágúst Ragnarsson sendi eftirfarandi (03.03.2015). Hann lét fylgja að hér væri ekki um beina tilvitnun að ræða heldur væri þetta samandregið úr 2-3 viðtölum, en sett fram til að sýna dæmi um óvandað málfar: ,,Dæmi um ofnotkun og aukaorð. Viðmælandinn: HEYRÐU ! liðið inniheldur, hérna, marga frábæra, hérna, leikmenn og framkvæmdu leikmenn mínir , hérna, …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1688

  Edda sendi Molum eftirfarandi (02.03.2015): ,,Alltof oft sér maður á netinu eða í dagblöðum notkun nafnorðsins, hor í hvk. Í barnaskóla var manni kennt að orðið hor (úr nefi) væri karlkyns, horinn, en núna virðist það vera komið í hvorugkyn, horið. Hvað veldur? Takk fyrir Molana, Edda.” Molaskrifari þakkar Eddu bréfið. Hefur tekið eftir …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1687

  Höggdofa horfði Molaskrifari á Kastljós Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi (03.03.2015). Og var örugglega ekki einn um það. Fátt, ef nokkuð, er svívirðilegra, en að vekja falsvonir hjá dauðvona fólki og hafa það að féþúfu. Þetta var sannast sagna óhugnanlegt. Takk Jóhannes Kr. Kristjánsson og allir sem þarna komu við sögu. Sennilega fer viðskiptavinum Sjónarhóls í …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1686

  Gamall starfsfélagi skrifaði (01.03.2015): ,, Ætlast fréttastofa Ríkisútvarpsins til þess að fólk taki mark á þessum börnum, sem látin eru lesa innslög í fréttatímum? Þau lesa nákvæmlega eins og grunnskólabörn. Það eru takmörk fyrir öllu, ég segi ekki meir.” Molaskrifari  tekur undir að stundum er lestri nýliða í fréttatímum ábótavant, að ekki sé  sterkar …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1685

Hér koma nokkrar línur frá gömlum vinnufélaga, sem stundum gaukar ágætum athugasemdum að Molaskrifara: ,,Fréttablaðið líti í eigin barm. Í dag (27.02.2014) er ágætur leiðari í Fréttablaðinu um heimskupör foreldra sem hætta lífi barna sinna með því að fá þau ekki bólusett við hættulegum barnasjúkdómum. Þar er líka vikið að stóriðnaði, sem óhefðbundnar lækningar eru …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1684

  Gamall samstarfsmaður sendi Molum eftirfrandi (26.02.2015): ,,Orðskrípið „óásættanlegur“ veður uppi sem aldrei fyrr og það jafnvel í tilkynningum frá akademískum stofnunum. Ég heyrði þennan ófögnuð fyrst af muni verkalýðsforingja eins fyrir hálfum öðrum áratug eða svo og síðan hefur honum stöðugt vaxið fiskur um hrygg. Við eigum mörg góð orð í íslensku máli sem …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1683

  Í fréttum Ríkissjónvarps í gærkvöldi (25.02.2015) var okkur sagt: ,,Haraldur fimmti Noregskonungur varð í gær fyrsti norski konungurinn til að heimsækja Suðurskautslandið og yfirráðasvæði Noregs þar”. Hér er frétt Aftenposten frá 11. febrúar sl. um komu Haraldar konungs til Suðurskautslandsins. Fyrir hálfum mánuði! http://www.aftenposten.no/nyheter/iriks/Kong-Harald-skrev-historie-i-Antarktis-7895562.html   Af mbl.is (24.02.2015):,, Grunn­hug­mynd­in að baki end­ur­skoðun laga um …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1682

Margt er innihaldið! Í íþróttafréttum Ríkisútvarps (23.02.2015) var hlustendum sagt frá liðum, sem innihéldu ýmist íslenska leikmenn eða þjálfara!   Efni Landans í Ríkissjónvarpi er fjölbreytt og fróðlegt. Molaskrifari hafði gaman af heimsókninni í Byggðasafnið á Garðskaga (22.02.2015). Að skaðlausu hefði mátt gera hinu stórmerka vélasafni, sem Guðni Ingimundarson frá Garðstöðum á allan heiður af, …

Lesa meira »

Older posts «

» Newer posts