Bæði á Bylgjunni og visir.is var (01.03.2014) ítrekað talað um Krímshérað. Molaskrifari er á því að tala ætti um Krímhérað. Við tölum um Krímskaga. http://www.visir.is/krimsherad-oskar-eftir-adstod-putin/article/2014140309992. Krímshérað óskar eftir aðstoð Pútín, segir í fyrirsögn. Eðlilegt væri hins vegar að tala um aðstoð Pútíns. Undarlegt er hve mörgum gengur illa að fara rétt með orðtakið að …
Molar um málfar og miðla 1425
Í fréttum Stöðvar tvö (27.02.2014) var fjallað um aðgengi fyrir fatlaða að verslunum og húsum við Laugaveg. Þar var talað um að ganga á eftir því við húseigendur… Hefði átt að vera: …ganga eftir því við húseigendur, – hvetja húseigendur til aðgerða. Molalesandi spurði (27.02.2014):!.” ,,Heyrðirðu þessa perlu í íþróttafréttum Ríkisútvarpsins núna kl 12:45: …
Molar um málfar og miðla 1424
Takk fyrir að sjá okkur, sagði kona sem rætt var við í morgunþætti Rásar eitt, þegar hún kvaddi ( (26.02.2014). Google-þýðingavélin að verki? Vegna lagningu (raflínu) var sagt í fréttayfirliti í sex fréttum Ríkisútvarps (26.02.2014). í fréttinni var hinsvegar réttilega sagt: Vegna lagningar raflínu. GÓG benti á eftirfarandi frétt af visir.is: http://www.visir.is/startadi–selfie–trendinu/article/2014140229105 Hann …
Molar um málfar og miðla 1423
Í fréttum Stöðvar tvö (25.02.2014) var talað um tímabundinn forseta Úkraínu. Sennilega var átt við bráðabirgðaforseta. Eða settan forseta eins og ágætlega var sagt var í fréttum Ríkissjónvarps. Nema óvenjulegur asi hafi verið á manninnum, hann hafi verið mjög tímabundinn. Í fréttaskrifum er alltaf betra að vita merkingu orðanna sem notuð eru. Morgunblaðið gætti …
Molar um málfar og miðla 1422
Steini benti á þessa frétt á vef Ríkisútvarpsins (23.02.2014): http://ruv.is/frett/milljardamaeringunum-teknir-opnum-ormum Hann segir: ,,Nú um stundir eru milljarðamæringar annaðhvort teknir höndum eða þeim tekið opnum örmum. Vonandi ákveður RÚV sig áður en langt um líður.” Molaskrifari þakkar sendinguna. NN skrifaði Molum eftir fund á Austurvelli (24.02.2014) ,,Veit ekkert hvort ég á að vera fylgjandi …
Molar um málfar og miðla 1421
Hversvegna ávarpa íslensk fyrirtæki og félög okkur aftur og aftur á ensku? Nýlega birti Ferðafélag Íslands heilsíðuauglýsingu undir fyrir fyrirsögninni Biggest Winner. Margir, þeirra á meðal Molaskrifari, telja Ferðafélagið íslenskast allra félaga. Hversvegna enska? Á laugardag (22.02.2014) birtist í Fréttablaðinu heilsíðu auglýsing frá Brimborg þar sem auglýstir eru Volvo bílar. Þvert yfir síðuna stendur: Made …
Molar um málfar og miðla 1420
Trausti sendi Molum línu (20.02.2014) vegna fréttar á dv.is, http://www.dv.is/frettir/2014/2/20/i-besta-falli-hugarburdur/ Hann segir: ,,Kári hefur stefnt Lex og Karli Axelssyni, einum af eigendum stofunnar, vegna reikninga í tengslum við vinnu lögmannsstofunnar fyrir hann við málsvörn hans í dómsmáli verktakans Fonsa ehf gegn Kára vegna steypun á glæsihýsi hans við Fagraþing nærri Elliðavatni.“ Hvað er ,,steypun“? …
Molar um málfar og miðla 1420
Trausti sendi Molum línu (20.02.2014) vegna fréttar á dv.is, http://www.dv.is/frettir/2014/2/20/i-besta-falli-hugarburdur/ Hann segir: ,,Kári hefur stefnt Lex og Karli Axelssyni, einum af eigendum stofunnar, vegna reikninga í tengslum við vinnu lögmannsstofunnar fyrir hann við málsvörn hans í dómsmáli verktakans Fonsa ehf gegn Kára vegna steypun á glæsihýsi hans við Fagraþing nærri Elliðavatni.“ Hvað er ,,steypun“? Veist …
Molar um málfar og miðla 1419
Trausti benti á þessa frétt á visir.is (19.02.2014): http://www.visir.is/kinverjar-aetla-ad-byggja-lengstu-jardgong-i-heiminum/article/2014140218822 Hann segir: Kostnaður við gerð gangnanna verður á bilinu 26 milljarða Bandaríkjadala. Hér er ekkert bil í kostnaðaráætlun. Kostnaðurinn er áætlaður 26 milljarðar USD! Molaskrifari þakkar Trausta og bætir við. Svo á þetta auðvitað að vera: Kostnaður við gerð ganganna, ekki gangnanna! Af mbl.is (19.02.2014): Slit …
Molar um málfar og miðla 1418
Í kvöldfréttum Ríkisjónvarps (18.02.2014) var sagt um skýrsluna sem ríkisstjórnin pantaði um stöðu aðildarviðræðna við ESB að hún hefði lekið í fjölmiðla. Ekki kann Molaskrifari að meta það orðalag. Hefði frekar sagt: Skýrslunni var lekið til fjölmiðla. Í sömu frétt var sagt að viðræðum við ESB hefði verið slitið. Það er ekki rétt eins og …