Molar um málfar og miðla 1436

  Í kvöldfréttum Ríkisútvarps (15.03.2014, minnir mig) var tvívegis talað um LÍÚ sem Landssamband íslenska útgerðarmanna. Þetta á ekki að henda þrautreyndan fréttmann eins og Arnar Pál Hauksson. LÍÚ heitir fullu nafni Landssamband íslenskra útvegsmanna. Ástæðulaust er að útrýma því ágæta orði útvegsmaður. Einhverjum kann að finnast þetta smáatriði. Smáatriðin þurfa líka að vera rétt …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1435

Þessi setning er á forsíðu Fréttablaðsins (14.03.2014): Þingmenn stjórnarandstöðunnar segja ríkisstjórnina hafa verið fíflaða. Sögnin að fífla þýðir að fleka eða tæla til kynmaka.   Úr frétt í Morgunblaðinu (15.03.2014): Samtök atvinnulífsins segja framhaldsskólakennara ekki hafa tekist að útskýra launakröfur sinar fyrir almenningi með skiljanlegum hætti. Hér ætti að standa: Samtök atvinnulífsins segja framhaldsskólakennurum ekki …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla1434

  Einar Örn Thorlacius sendi Molum eftirfarandi um málsmekk: Um tölu og greini í íslensku: Það er ekkert rangt við að tala t.d. um Norðurlandið, Vestfirðina og Austurlandið í staðinn fyrir að tala um Norðurland, Vestfirði og Austurland. Það er heldur ekkert rangt við að notað orðið „vara“ ætíð í fleirtölu og tala um vörur …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1433

  Í fréttum Stöðvar tvö (12.03.2014) sagði Þórhildur Þorkelsdóttir, fréttamaður : ,,Málið er talið svipa til mála,sem upp komu árið 2011 …”. Málið svipar ekki til mála. Málinu er talið svipa til mála, hefði verið betra. Eða: Málið er talið svipað málum, sem ….   Í vaxandi mæli er Kastljós Ríkissjónvarpsins lítið annað en eitt …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1432

KÞ vakti athygli Molaskrifara á frétt á  visir.is (11.03.2014), en þar segir: Hvert sem afdrif vélarinnar kann að vera, á að teljast ómögulegt að símarnir skuli enn vera tengdir nú þegar fjórir dagar eru liðnir frá því að vélin hvarf.  Sjá: http://www.visir.is/farsimar-fartheganna-hringja-enn-/article/2014140319750 Hann spyr og er það að vonum: Hvert skyldi afdrifið vera? KÞ benti …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1431

Molavin skrifaði (09.03.2014): ,,Er það rangminni mitt frá bernskuárum í sjávarþorpi, að talað hafi verið um dekkhlaðin skip eða báta? Þá voru ekki aðeins lestir fullar heldur skellt upp borðum á hliðar og dekk líka fyllt af síld. Það gat orðið hættuleg sigling og öll áhöfnin stóð á brúarvæng og var aðeins gert þegar sléttur …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1430

  Molalesandi benti á þessa frétt á mbl.is (05.03.2014): http://www.mbl.is/frettir/innlent/2014/03/06/36_prosent_auking_a_hotelum_i_januar/ Hann segir: – Ég skildi ekki einu sinni hvað um var rætt ,,36% auking á hótelum“? Mér sýnist að þarna sé átt við fjölgun hótelgesta og fyrirsögnin átt að vera ,,Hótelgestum fjölgar um 36 prósent“. Molaskrifari þakkar réttmæta ábendingu.   Ósveigjanleiki Norðmanna er um að …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1429

  Rafn skrifaði (05.03.2014): ,,Í málfarsmolum nr. 1427 finnur Haraldur Ingólfsson að því að í fréttaflutningi hafi verið talað um, að Suður-Afríkaninn Óskar Pistoríus hafi skotið unnustu sína og það lagt að jöfnu við, að hann hafi þar verið sagður morðingi hennar. Samkvæmt þeim fréttum, sem ég hefi séð og heyrt um málið er ágreiningslaust, …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1428

Molavin skrifaði (04.03.2014):,,Vegagerðin mokar ekki fjöllin milli Akureyrar og Egilsstaða í dag eins og til stóð….“ sagði í fjögur-fréttum RUV 4. mars. Enda er varla hægt að ætlast til slíks. Það hlýtur að nægja að moka fjallvegi.  –  Rétt. Molaskrifar þakkar ábendinguna.   Í frétt á bls. 2 í Fréttablaðinu (04.03.2014) um flug færeyska flugfélagsins …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1427

Steini skrifaði (03.03.2014): ,,Mikil aukning hefur orðið á komum ferðamanna til landsins”, segir Mbl.is í frétt um ferðamenn um helgina. Þetta er ekki falleg íslenska. Ferðamönnum hefur fjölgað, væri betra. Í fréttinni stendur einnig að leiga sé ,,skrúfuð upp í botn“. Þarna eru höfð endaskipti á hlutunum því auðvitað fara hlutirnir NIÐUR á botn, en …

Lesa meira »

Older posts «

» Newer posts